19.05.1921
Sameinað þing: 3. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2500 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

Kosningakæra frá Ísafirði

Frsm. (Gunnar Sigurðsson):

Jeg skal ekki þreyta menn með langri framsögu; aðeins vil jeg með fáum orðum skýra frá, að hvaða niðurstöðu nefndin hefir komist, eftir að hafa kynt sjer kosningakæruna, þingbókina, sem hefir inni að halda rannsókn hennar, og önnur skjöl henni viðvíkjandi. Um þingbókina vildi jeg segja það sama og sagt var einu sinni um aðra bók, að jeg sje eftir pappírnum í hana, því þar er óþarflega langt mál um ekki meira efni.

Allir nefndarmennirnir eru sammála um, að þingbókin beri greinilega með sjer, að rannsóknin hefir ekki leitt neitt það í ljós, sem ónýtt gæti kosninguna á Ísafirði 1919, þar sem ekki er upplýst, að áheit eða mútuboð þau, er ræðir um í kærunni. hafi haft áhrif á kosninguna, og því síður sannað, að alþingismaður Jón Auðunn Jónsson hafi haft vitneskju um, að slíku var reynt að beita. Aftur álíta 2 af nefndarmönnunum rjett að rannsaka mál þetta nánar, sökum þess, að upplýst er við rannsóknina, að Bjarni Bjarnason ökumaður hefir heitið á menn fje til þess að kjósa Jón A. Jónsson og greitt það að einhverju leyti að kosningunni lokinni; ennfremur er það upplýst með eiðsvörnum framburði eins vitnisins, að Bjarni hafi beint boðið fje í sama tilgangi. Álit tveggja nefndarmanna er nú, að þessar aðfarir Bjarna höggvi svo nærri 114. gr. hegningarlaganna, að ástæða sje til, að þetta verði rannsakað til hlítar. Við álítum varhugavert fyrir þingið að ganga inn á þá braut, að láta óátalið, að menn gangi um og heiti fje á menn, ef ákveðinn maður verður kjörinn til þings. Jeg er ekki áfjáður í að reyna að koma mönnum í hegningarhúsið, og að mínu áliti eru hegningarlög okkar altof ströng og orðin svo mjög á eftir tímanum, að bráð nauðsyn er á endurskoðun þeirra. En úr því, að á annað borð er verið að refsa mönnum, þá á að refsa þessum manni, sannist það, að hann hafi mútað, því það er sannarlega varhugavert, fari það að tíðkast, að menn gangi um við kosningar og bjóði fram mútur beint eða óbeint. Í nefndinni kom fram sú skoðun, að ekki mætti halda rannsókn áfram, því það kæmi niður á konu mannsins og börnum, sem væru algerlega saklaus; þetta er rjett, en svo er þetta altaf. Svo er heldur ekki víst, að þótt rannsókn verði haldið áfram, þá verði maðurinn settur í fangelsi, allra síst nema einfalt. Verið getur og, að við rannsóknina sannaðist sakleysi hans, og auðvitað væri það hið besta, þótt það sje ósennilegt, eftir þeim skýrslum, sem fyrir liggja.

Skal jeg svo ekki fjölyrða frekar um þetta, en legg til, að málið verði frekar rannsakað, af þeirri ástæðu, sem jeg hefi áður tekið fram, að nærri liggur, að 114. gr. hegningarlaganna hafi verið brotin. Það átelur nefndin, að við rannsóknina var aðalkærandinn kallaður fyrir rjett í Reykjavík, en ekki á Ísafirði, þar sem hann kveðst, enda var slíkt augljóst, geta gefið meiri og betri upplýsingar.