26.04.1921
Efri deild: 52. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (834)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Frsm. samgmn. (Halldór Steinsson):
Jeg var ekki samdóma fjárveitinganefndinni um suma liði í brtt. á þskj. 368, og verð því að vera á móti þeim. Hvað snertir utanfararstyrk til lækna þeirra, sem sótt hafa um hann, þá hefir nefndin verið sammála um það, að veita beri þeim einhvern styrk, og verð jeg því að álíta, að hann geti ekki verið minni en 2500 kr. fyrir hvern lækni. Jeg mun því greiða atkv. með þessari styrkveitingu, eins og hún er afgreidd frá Nd., að hvor læknanna, Jón Kristjánsson og Gunnlaugur Claessen. fái 2500 kr.
Þá kem jeg að launabótum kennara vjelstjóraskólans, þeirra Sigurbjörns Á. Gíslasonar og Guðmundar Kristjánssonar. Stjórnin hefir lýst því yfir, að laun þessara kennara væru óeðlilega lág, samanborið við laun kennara við Kennaraskólann, og jeg er henni fyllilega sammála um það. Því að í upphafi mun hafa vakað fyrir þeim, sem sömdu launalögin, að laun kennaranna við þessa skóla ættu að vera jöfn. — Jeg þekki Sigurbjörn Gíslason persónulega og veit, að hann hefir orðið að leggja á sig mikil aukastörf til þess að geta gegnt þessu starfi eins og nútíminn krefst. Jeg er því algerlega á móti því að færa þessar launabætur niður.
Jeg er samdóma háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) um það, að illa sje fallið að fella vitana niður, þar sem líka vitamálastjóri hefir krafist, að þeir væru báðir bygðir. Hann sagði og, að Elliðaeyjarvitinn ætti að ganga fyrir öllum vitum, nema Austfirðingavitunum, en þá er ekki hægt að byggja, sökum fjárskorts. Jeg verð að taka það fram, að jeg tel það mjög varhugavert að skera niður fjárveitingar, sem t. d. vegamálastjóri og vitamálastjóri leggur til, að veittar sjeu, og því fremur, þar sem í þessum embættum eru nú mjög góðir sjerfræðingar í þessum greinum, sem hafa auðvitað miklu betri þekkingu í þessum greinum en til má ætlast að þingið hafi. Jeg tel þessar fjárveitingar til vitanna alveg sjálfsagðar, og vona því, að háttv. deild samþykki ekki þessa brtt. nefndarinnar, að fella vitana niður.
Jeg skal svo aðeins minnast á styrkveitinguna til Jóh. L. L. Jóhannssonar. Hæstv. fjrh. (M. G.) sagði, að styrkurinn hefði verið feldur niður, af því að hann hefði ætlað að borga honum af því fje, sem syni hans, Jakobi Smára, var ætlað til samningar íslensku orðabókarinnar. Jeg fyrir mitt leyti verð að telja það dómstólanna að skera úr því, hvort heimild sje til að neita að greiða Smára þennan styrk, og því eigi að setja styrkinn til Jóhannesar inn í fjárlög.
Jeg mun svo ekki segja fleira að svo stöddu.