26.04.1921
Efri deild: 52. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í B-deild Alþingistíðinda. (836)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Forsætisráðherra (J. M.):

Það var út af ræðu háttv. þm. Snæf. (H. St.), að jeg vildi segja nokkur orð. Hann talaði um, að strandferðirnar væru dýrar, eftir þeim notum, sem af þeim yrðu. Jeg held nú, að eigi verði hjá því komist, ef strandferðir eiga að vera á annað borð. Hann talaði um, að samningarnir við Eimskipafjelag Suðurlands væru óhagfeldir, og hefðu þeir átt að bíða, þar til þing kom saman. Hæstv. atvrh. (P. J.) lýsti því nú í háttv. Nd., að samninginn hefði orðið að gera, einmitt á þessum tíma, til þess að ferðirnar yrðu settar í samband við ferðir Sterlings, og var samningurinn gerður eftir tillögum framkvæmdarstjóra Eimskipafjelags Íslands. Jeg hefi látið þessa getið af því, að atvrh. (P. J.) er hjer ekki viðstaddur. Og læt jeg svo útrætt um það mál. Viðkomandi ráðherra getur þá svarað betur við tækifæri.

Um lækningastyrkinn til bæjarfógetans á Seyðisfirði og læknanna tveggja skal jeg ekkert segja. En vil aðeins, út frá orðum háttv. þm. Vestm. (K. E.) láta þess getið, að stjórninni hefir ekki tekist á síðari tímum að fá kandídata til þess að þjóna embættum um stundarsakir, nema fyrir full laun. Jeg veit ekki hvað hlutaðeigandi embættismönnum sjálfum kann að takast, en þessi hefir reynd stjórnarinnar orðið í því efni.