26.04.1921
Efri deild: 52. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (838)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Guðmundur Guðfinnsson:

Jeg hefi aðeins örlitlu við að bæta, það sem jeg sagði í dag, og er það aðeins til þess að leiðrjetta misskilning. Jeg sagði aldrei, að háttv. frsm. (S. H. K.) hefði farið með rangt mál, heldur hefði brjef sýslumannsins verið bygt á misskilningi, sem nefndin bygði á.(S. H. K.: Það var ekki nefndarinnar sök). Jeg endurtek það, að háttv. nefnd hefir væntanlega ekki lesið brjef vegamálastjóra um þetta mál.

Að því er snertir skeytið, þá er það ekki eins greinilega orðað og skyldi. Annars býst jeg við, að sýslumaður sætti sig við, að veittar verði 7000 kr., enda stendur það í skeytinu, og hefi jeg, þar að auki, talað við hann síðan um það efni.

Hvað snertir læknastyrkinn, þá skal jeg geta þess, að mjer var ókunnugt um, að Gunnlaugur Claessen ætlaði á læknafund erlendis til þess að fullkomna sig enn betur í radíumfræðum sínum. Ætla jeg, að honum sje síst of mikill styrkur veittur til fararinnar, þar sem þetta á að verða hvorttveggja í senn, ferðastyrkur til þess að mæta á vísindalegum fundi og endurgjald fyrir kaup á lækningatækjum í þarfir ríkisins. Jeg talaði við hann í dag, og kvaðst hann verða neyddur til að sleppa úr mjög áríðandi liðum á ferðaáætlun sinni. — Að því er áhrærir Jón Kristjánsson, þá var mjer líka þar til í dag ókunnugt um, að hann ætlaði með fram að sigla til þess að setja sig inn í notkun nýrra áhalda, er snerta lækningagrein hans.

Viðvíkjandi öðrum atriðum skal jeg ekki bæta miklu við það, sem jeg sagði í dag. Það er misskilningur, að jeg hafi nokkurntíma í því sambandi talað um að 1500 kr. væru smánarboð. Jeg er annars fús á að fara þar samningaleið, og skal bjóðast til að taka aftur till. mína á þskj. 383, ef háttv. nefnd lofar þá líka að taka sína till. aftur.