26.04.1921
Efri deild: 52. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (840)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Guðmundur Ólafsson:

Jeg heyrði það á ræðu háttv. frsm. (S. H. K.), að hann hafði ekki látið sannfærast af orðum mínum í þessu máli. Hann virtist bera Húnvetninga mjög fyrir brjóstinu, að þeir myndu ekki, að svo stöddu, færir um að ráðast í slík stórvirki. En jeg á bágt með að sjá, að þeir muni standa nokkuð betur að vígi með þetta að ári en nú. Hvað lántökuna annars snertir, þá get jeg ekki sjeð, að það sje nein minkun fyrir Húnvetninga að taka lán til þessa, úr því að ríkið sjálft verður, að öllum líkindum, að taka lán til þess að jafna með tekjuhalla fjárlaganna, og við það hefir háttv. fjvn. ekkert að athuga. En fari nú svo, sem jeg vona að ekki verði, að neitað verði að borga út fjeð til bryggjubyggingar sunnan Blöndu, svo að fresta verði bryggjusmíðinni í sumar, þá tel jeg þinginu skylt að tryggja það, að í næstu fjárlögum verði ekki veittur minni styrkur til þessa fyrirtækis en nú er.

Háttv. frsm. (S. H. K.) komst svo að orði áðan um embættismennina, „að þeir yrðu þó að hafa rjett til að lifa“. Slík ummæli verð jeg að telja mjög óviðeigandi. Eða hver hefir viljað taka þann rjett af þeim? En jeg vil þá bæta því við, að vjer höfum allir jafnan rjett til þess, — en þó ætlast jeg ekki til, og býst ekki við, að hægt sje að veita oss þann rjett úr ríkissjóði.

Hvað arfinn snertir, sem jeg mintist á í fyrri ræðu minni, lít jeg svo á, að háttv. nefnd ætli að taka þá till. sína til baka, fyrst frsm. (S. H. K.) gat hennar ekkert nú.