26.04.1921
Efri deild: 52. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 780 í B-deild Alþingistíðinda. (841)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Sigurður Jónsson:
Jeg býst við, að hv. deild þekki mig nú orðið svo vel, að hún fari ekki að kvíða því, að jeg tefji umr. lengi, enda eru þær nú orðnar fulllangar. Það er eiginlega brtt. á þskj. 383, sem jeg vildi minnast lítið eitt á. Jeg býst við því, að háttv. deild haldi ekki fast við það sem aðalreglu, hvernig sem á stendur, að veita jafnan styrk til þeirra sjúkrahúsa, sem eru fyrir heilan landsfjórðung, og smá sjúkraskýli í smærri læknisumdæmum. Verður vitanlega að gera þeim hærra undir höfði, sem meiri bjargir veita.
Viðvíkjandi læknastyrknum skal jeg geta þess, að jeg legg til, að hærri upphæðin verði veitt. Það eru um þessar mundir engin vísindi eins hraðfara til umbóta og nýbreytni eins og læknavísindin, og því engri stjett manna eins mikil þörf á að fylgjast með tímanum eins og læknum. Þá hafa utanferðir lækna alveg sjerstaka þýðingu á afskektu landi eins og voru, og dugir því ekki að horfa í það, þótt nokkru fje verði til að kosta.
Hvað Flensborgarskólann snertir, þá álít jeg, að hann sje búinn að vera til þeirra þrifa hjer á landi, að jeg tel það hreinustu mistök af þinginu, ef það verður látið reka á reiðanum með það, hvort hann heldur áfram eða hættir starfsemi sinni.