30.04.1921
Efri deild: 59. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (847)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Guðmundur Björnson:
Herra forseti! Það er út af 3. brtt. á þskj. 427, sem jeg vildi segja nokkur orð.
Eins og allir vita, er jeg orðinn roskinn maður, og veit jeg eigi til, að nokkur maður hafi verið meira elskaður af þjóðinni en gamli Matthías Jochumsson; enda hefir enginn maður varpað slíkum frægðarljóma yfir íslenska skáldskaparlist. Þjóðin kunni að meta hann meðan hann lifði, sem einn sinn mætasta mann; en nú er hann fallinn í valinn og hefir látið eftir sig gamla ekkju og ellihruma. Jeg tel eigi hægt að sýna honum látnum öllu meiri sóma en þann, að láta hina eftirlifandi konu hans fá, orðalaust, það, sem hún biður um.
Jeg tala hjer fyrir alt landið, og vil því skora á deildina að láta sjer farast sómasamlega við konu þessa, og samþ. því brtt. eins og hún er á áðurgreindu þskj.