19.05.1921
Sameinað þing: 3. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2502 í B-deild Alþingistíðinda. (86)
Kosningakæra frá Ísafirði
Frsm. (Gunnar Sigurðsson):
Meining okkar var sú, að máli þessu yrði vísað til stjórnarinnar með þeim fyrirvara, að hún láti rannsaka málið frekar.
Rjett er það, sem háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) sagði, að ekki er fyllilega upplýst, hvort 114. gr. hegningarlaganna hefir verið brotin. En þó er fullkomin ástæða til að rannsaka þetta mál nánar og láta mann þennan að minsta kosti fá alvarlega áminningu.