02.03.1921
Efri deild: 12. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (884)
5. mál, lífeyrissjóður embættismanna og ekkna þeirra
Fjármálaráðherra (M. G.):
Jeg vildi aðeins taka það fram, að jeg sje ekki ástæðu til þess að mæla á móti þeim brtt., sem háttv. nefnd hefir gert, þar sem þær gera engar breytingar á aðalatriðum frv. En að því er til þess kemur, er hv. nefnd virðist kvarta um ónógan undirbúning frv., þá fæ jeg ekki betur sjeð en að hún eigi þar við sjálfa sig, þar sem hún átti og um þetta frv. að fjalla á þinginu 1919 og samþykti flest atriði þess sem lög. En hvað stjórnina snertir, þá vakti það fyrir henni að gera sem minstar breytingar á frv., þar sem henni þótti sennilegt, að hv. Alþingi mundi nú vilja breyta sem minst lögum frá 1919, og sje jeg ekki, að ástæða sje til að leggja nenni það til lasts.
Jeg sje, að þessar breytingar hafa nokkur útgjöld í för með sjer fyrir ríkissjóð, en þar sem um tiltölulega litla upphæð er að ræða, en annarsvegar ekkjur og munaðarlaus börn, sem hjer eiga hlut að máli, þá vil jeg ekki mæla á móti þeim.
Annars verð jeg að segja það, að jeg furða mig á því, að háttv. nefndarmenn skyldu ekki sjá þessa galla á þinginu 1919. (S. E.: Þeir voru ekki í nefndinni þá). Þeir voru í þessari hv. deild, og einn þeirra í stjórn.