11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 845 í B-deild Alþingistíðinda. (908)
5. mál, lífeyrissjóður embættismanna og ekkna þeirra
Frsm. (Björn Hallsson):
Það er vonandi, að það verði ekki eins stór hvellur út af þessu máli eins og því, er við vorum nú að skilja við, því að þá gengju þingstörfin ekki vel. Það vill nú svo vel til, að jeg þykist ekki þurfa að hafa langa framsöguræðu. Málið er þaulrætt orðið hjer í deildinni, og viðvíkjandi þessum fáu brtt. ætla jeg að nægi að vísa til nál. á þskj. 539.
Skoðun nefndarinnar er sú hin sama og áður, og leggur hún því til, að frv. sje fært í sama búning og það hafði, er það fór hjeðan úr deildinni eftir 3. umr. Hv. Ed. feldi niður þá breytingu, sem hjer var gerð, að hækka hundraðsgjald, sem embættismenn gjaldi í lífeyrissjóð, sem skipaðir eru eftir 1. jan. 1922, um 1%, og að ekkjur fái 3/10 í stað 1/5 úr sjóðnum. Enn fremur er sú breyting gerð, að sá 1/10 úr landssjóði, er ekkjur eiga að fá, falli niður fyrir þá embættismenn, sem skipaðir eru frá sama tíma (1. jan. 1922). Þennan 1/10 setti háttv. Ed. inn aftur. Þessar breytingar, sem háttv. Ed. gerði á frv. vill nú nefndin aftur lagfæra, svo að frv. verði eins og þegar það fór hjeðan.
Þessar breytingar voru miðaðar við árið 1922, en áttu ekki að gilda fyrir þá embættismenn, sem áður eru skipaðir.
Þetta mál er háttv. deild svo kunnugt, að jeg sje enga ástæðu til þess að fjölyrða frekar um það.