08.04.1921
Efri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (918)

25. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Frsm. (Karl Einarsson):

Ástæðurnar fyrir þessu frumvarpi eru svo greinilegar, að engin þörf gerist að fara nú mörgum orðum um þær. Auk þess er frv. mjög vel undirbúið og hefir legið um hríð frammi, svo þm. hafa átt kost á að kynna sjer það. Jeg ætla þá aðeins að minnast lítið eitt á þær brtt. nefndarinnar, sem skifta mestu máli.

Með fyrstu brtt. við 3. gr. er sú breyting ger, að helmingur þess kostnaðar, sem þar ræðir um, skuli greiðast úr ríkissjóði. Eins og tekið hefir verið fram, er mikil nauðsyn, að þetta starf sje leyst vel af hendi, og landsstjórnin á að ráða því, hvenær þessar mælingar fara fram. Það virðist því í fylsta máta sanngjarnt, að ríkissjóður leggi fram nokkuð af þessum kostnaði.

Hvað snertir breytinguna á 4. gr. frv., þá sá nefndin sjer ekki fært að setja föst tímatakmörk um það, hvenær mælingum skuli vera lokið, en taldi rjettast að leggja það í vald stjórnarinnar. Geri jeg ráð fyrir, að stjórnin geti litið rjettum augum á svo einfalt mál sem þetta.

Þriðja aðalbreytingin er 9. brtt., við 15. gr. frv. Þar er stungið upp á því, að í stað 5 manna nefndar komi 3 manna nefnd. Jeg tel það í alla staði rjett og hagkvæmt, að menn, sem hafa sjerþekkingu í þessum málum, skipi þessa nefnd. Það sem kynni að vanta í nefndina, eins og hún er skipuð, er lögfræðileg kunnátta. En þetta ætti ekki að gera mikið til, þar sem málið á að ganga gegnum stjórnarráðsskrifstofu, en þar er svo mikið af lögfræðingum, að hin lagalega hlið ætti að verða fulltryggilega athuguð.

Um 12. og 13. brtt. nefndarinnar er hugsanlegt, að ágreiningur geti orðið. 12. brtt. er við 25 gr. frv. Hún er í því fólgin, að í staðinn fyrir „hús“ verði sett: geymsluhús, peningshús, hjalla og önnur hús. Nefndinni fanst óþarflega langt gengið, ef hægt væri að taka íbúðarhús eignarnámi. Við höfum orðið varir við talsverða óánægju út af þessari brtt. af hálfu þeirra, sem undirbúið hafa frv. En nefndinni fanst engin ástæða til að leyfa slíkt, því að flestir kaupstaðir eru þannig bygðir, að engin þörf getur verið á að taka þar hús eignarnámi. Svo er um Akureyri, Ísafjörð, Seyðisfjörð og Hafnarfjörð. Nokkru öðru máli gegnir um Vestmannaeyjar og Reykjavík; þar getur ef til vill orðið þörf á því.

26. gr. frv. vill nefndin að verði feld niður. Hún kann ekki við, að þessi grein standi. Því að ef einhver líður verulegan skaða við framkvæmd skipulagsins, þá verður að endurgjalda honum það, samkvæmt 27. gr. En þó einhver geti ekki bygt eins og hann hefir hugsað sjer, þá liggur vitanlega í hlutarins eðli, að hann getur ekki krafist skaðabóta, og þarf alls ekki að taka það fram í lögunum. Nefndin lítur því svo á, að greinin sje allsendis óþörf, eða öllu heldur til ills.

Í brtt. nefndarinnar, við 11. gr., leggur hún til, að ríkissjóður borgi 2/3 hluta kostnaðar við skipulagsuppdrætti, í stað þess, að eftir frv. á hann aðeins að borga helming. Mikil ástæða væri til þess, að ríkissjóður borgaði allan kostnaðinn. En nefndin vildi ekki ganga lengra en hún gerir, til þess að menn litu með meiri sanngirni á fyrstu brtt.

Svo held jeg, að jeg þurfi ekki að taka fleira fram. Óska aðeins, að deildin samþ. frv. með breytingum nefndarinnar.