08.04.1921
Efri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 852 í B-deild Alþingistíðinda. (921)
25. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Guðmundur Ólafsson:
Jeg hefi ekki margt að athuga við brtt. nefndarinnar; þær eru sjálfsagt flestar góðar. Á 7. brtt. nefndarinnar, við 11. gr. frv., get jeg þó ekki fallist. Samkvæmt frv. á ríkissjóður að borga helming kostnaðar við skipulagsuppdrætti, en nefndin vill láta ríkissjóð borga 2/3 hluta þess kostnaðar. Jeg álít, að það sje síður en svo, að þessi brtt. sje til bóta. Það hefir verið algild regla, að styrkur ríkissjóðs til fyrirtækja hreppa, bæja eða sýslufjelaga skuli aldrei fara fram úr helmingi kostnaðar, og oft minna. Til dæmis borgar ríkissjóður aðeins þá hluta kostnaðar við bryggjur í kauptúnum og fleiri nauðsynjastörf. Jeg get því alls ekki verið með því, að ríkissjóði sje heldur í þessu falli ætlað að borga meira en helminginn.
Fremur get jeg felt mig við brtt. nefndarinnar við 3. gr. frv., því að það er varla rjett að láta bæjar- eða hreppsjóði borga allan kostnað við mælingar og uppdrætti. Það er sanngjarnt, að ríkissjóður ljetti eitthvað undir með þeim. Nefndin fer þó, ef til vill, fulllangt, þar sem hún vill láta ríkissjóð borga helming kostnaðar, en þó vil jeg ekki gera það að kappsmáli.