08.04.1921
Efri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í B-deild Alþingistíðinda. (922)
25. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Sigurður Hjörleifsson Kvaran:
Jeg get ekki fallist á þá röksemdaleiðslu háttv. frsm. (K. E.), að það megi bíða með að setja inn í lögin ákvæði um, að taka megi íbúðarhús eignarnámi, sökum þess að altaf sje hægt að breyta þessu síðar. Yfir höfuð er það mín skoðun, að við eigum að gera lögin svo úr garði, að hægt sje að nota þau en ekki að gera ráð fyrir, að svo að segja straks þurfi að endurbæta þau.
Jeg vil herða á því, sem jeg sagði áðan, að þegar leyft er að taka geymsluhús eignarnámi, þá er ekkert samræmi í því að banna algerlega að taka íbúðarhús, því að útihús geta oft verið verðmeiri. Lítið, gamalt íbúðarhús getur t. d. verið mikið verðminna en nýtt, stórt geymsluhús.
Fyrir nefndinni vakir kostnaðurinn við að taka húsin eignarnámi. En hann er ekkert nema grýla, því að sjálfsögðu yrðu ekki tekin eignarnámi nema lítil hús, nema þörfin væri því brýnni. Engin hætta er þess vegna á ferðum, þótt orðalag frv. haldist.