04.05.1921
Neðri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í B-deild Alþingistíðinda. (929)
25. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Frsm. (Pjetur Ottesen):
Í lögum 1905 er löggiltum verslunarstöðum, sem eru hreppsfjelög út af fyrir sig, heimilað að setja byggingarsamþyktir og kveða þar á um mælingu kauptúnsins og fyrirkomulag á húsaskipun og gatnagerð. Síðan lög þessi voru sett, hefir óneitanlega orðið mikil breyting til bóta á skipulagi kauptúna, þótt enn sje mikið ábótavant í þessu efni. Hins vegar ber því ekki að neita, að sumsstaðar hefir þessu ekki verið framfylgt sem skyldi, og því hvergi nærri nógur gaumur gefinn að koma á góðu skipulagi um þessa hluti.
Þetta mun hafa ýtt undir það, að frv. þetta, um frekari íhlutun og eftirlit með hyggilegri framkvæmd þessara mála, er framkomið.
Ef jeg man rjett, þá flutti háttv. þm. Str. (M. P.) frv. þetta á þinginu 1917, og hafði prófessor Guðmundur Hannesson, sem hefir áhuga mikinn á þessum málum, samið og undirbúið frv. Málið þótti þá mikið nýmæli, og var því vísað til stjórnarinnar til frekari undirbúnings og íhugunar.
Hæstv. stjórn hefir nú látið athuga frv. frekar, og hafa bæði vegamálastjóri og húsagerðarmeistari ríkisins haft það til athugunar, svo að ætla mætti, að eigi skorti á undirbúning. Frv. var lagt fyrir þingið í fyrra, en dagaði uppi, ásamt fleiru þá.
Háttv. Ed. hefir nú gert ýmsar breytingar á frv., og getur allsherjarnefndin fallist á þær yfirleitt. í stjórnarfrv. var ætlast til þess t. d., að allur kostnaður við uppdrætti og mælingar yrði greiddur úr viðkomandi bæjar- eða sveitarsjóðum, en Ed. gerði ríkissjóði að greiða helminginn, og virðist það sanngjarnt, þar sem stjórnin á að hafa svo mikla íhlutun um þetta mál og ræður þar miklu. Um leið eru þá stjórninni í rauninni falin frekari yfirráð yfir verkinu í heild sinni. Þannig er stjórninni nú gert að skyldu að láta sjálf framkvæma mælingarnar á kostnað sveitarsjóðs, ef viðkomandi hreppsstjórn hefir vanrækt þær. Þó vil jeg geta þess í þessu sambandi, að nauðsynlegt er auðvitað, að góð samvinna haldist milli stjórnar og hreppsnefndar um framkvæmdir þessar, og beitir stjórnin því að sjálfsögðu ekki hörku í þessu efni, nema full nauðsyn sje á. Sömuleiðis mun stjórnin auðvitað reyna að draga úr kostnaðinum við þetta eftir föngum, og ljeti að sjálfsögðu þá verkfræðinga og húsameistara, sem hún hefir í þjónustu sinni, vinna verkið, eftir því sem unt er.
Þá er 14. gr. nú öðruvísi en hún var stjórnarfrv., þar sem þar var gert ráð fyrir 5 manna nefnd til að skera úr þrætum, sem upp kunna að koma, en Ed. breytti þessu í 3. Annars get jeg vísað til frv. sjálfs og meðferðar þess í háttv. Ed., því aðrar breytingar þarf ekki að skýra hjer. Mikið af þessu eru innskot til skýringar og skilningsauka, sem ótvírætt bæta frv., eins og breytingarnar gera yfirleitt, og leyfir allsherjarnefnd sjer því, sem sagt, að leggja það til, að háttv. deild samþykki frv. óbreytt.*)
*) Inn í ræðu þessa vantar frá innanþingsskrifaranum (V. Þ. G.) langan kafla.
P. O.