12.05.1921
Efri deild: 68. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í B-deild Alþingistíðinda. (940)

25. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa

Frsm. (Karl Einarsson):

Frv. þetta tók, eins og kunnugt er, nokkrum breytingum hjer í deildinni, og hefir háttv. Nd. látið þær breytingar, sem flestar voru orðabreytingar, halda sjer. En auk þess hefir Nd. gert eina efnisbreytingu á frv., sem fer í þá átt, að kauptún og sjávarþorp, sem hafa færri en 500 íbúa, þurfi eigi að mæla eða gera skipidag um.

Nefndin hefir athugað þessar breytingar og er ásátt um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt, eins og það nú liggur fyrir.