20.04.1921
Neðri deild: 48. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 887 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
28. mál, bifreiðaskattur
Fjármálaráðherra (M. G.):
Jeg kvaddi mjer nú aðallega hljóðs til þess að lýsa því yfir, að jeg get ekki gengið að þessum brtt. Lækkun á skattinum má ekki meiri verða. Nefndin hefir þegar fært hann niður, svo að hann nemur nú orðið ekki nema 1/4 miðað við samskonar skatt í Danmörku. Þess vegna getur ekki komið til mála að samþ. 1. brtt. á þskj. 352. Og eins er um 2. og 3. brtt. á sama þskj., að jeg sje enga ástæðu til þess að þær eigi að fá fram að ganga, því að þótt jeg álíti það tilgang þessa skatts, að hann eigi að bæta vegina, þá þarf ekki að halda honum í sjerstökum sjóði, enda þarf á hverju ári að gera við vegina, og það fyrir langt um hærri upphæð en þá, sem bifreiðaskatturinn nemur. Ekki ósennilegt, að austur að Ölfusárbrú myndi sá viðhaldskostnaður á ári tvöfalt hærri en allur bifreiðaskatturinn gefur.
Jeg álít, að við höfum gert of mikið að því að stofna nýja og nýja sjóði, og um þennan sjóð stendur nokkuð sjerstaklega á, því að í honum yrði aldrei neitt, alt tæmt úr honum jafnóðum.