21.05.1921
Sameinað þing: 4. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2512 í B-deild Alþingistíðinda. (97)
Þinglausnir
forseti:
Störf þessa þings hafa verið mikil, og mörg af málum þeim, sem fyrir því hafa legið, mjög vandasöm og erfið viðfangs. Einlægur vilji allra þingmanna hefir verið að taka þær ályktanir, sem að þeirra dómi væru nauðsynlegar og nægilegar til bjargráða atvinnuvegum landsins og fjárhag þess, og er það einlæg ósk okkar allra, að störf Alþingis hafi verið þannig, að þetta hafi tekist.
Að endingu vil jeg óska öllum þeim
þingmönnum, sem heima eiga utanbæjar, góðrar heimfarar og heimkomu.
0098
Fjármálaráðherra (M. G.): Í nafni og umboði hans hátignar konungsins lýsi jeg því yfir, að þessu þrítugasta og þriðja löggjafarþingi Íslendinga er slitið.
Stóð þá upp Sigurður Stefánsson, þm.
N.-Ísf., og mælti:
„Lengi lifi konungur vor, Kristján hinn Tíundi!“
Tóku þingmenn undir þau orð með níföldu húrrahrópi.
Var síðan af þingi gengið.