04.05.1921
Efri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (972)
28. mál, bifreiðaskattur
Fjármálaráðherra (M. G.):
Þetta frv. sýnist eiga hjer talsvert erfitt uppdráttar, svo að tvísýnt virðist, hvort það muni ná fram að ganga. Jeg vil þó ekki láta undir höfuð leggjast að minnast á það með nokkrum orðum og andmæli þau, sem fram hafa komið gegn því.
Háttv. frsm. meiri hl. (B. K.) talaði um, að tekjurnar af skattinum mundu verða minni en stjórnin áætlaði. Nei, þær verða nú einmitt meiri, því að háttv. Nd. feldi úr stjórnarfrv. ákvæði um, að þær bifreiðar, sem aðeins ganga innan kaupstaðartakmarka, skyldu greiða skattinn til kaupstaðanna.
Viðvíkjandi því, sem hann talaði um hestaflatölu bifreiðanna, þá vil jeg upplýsa hann um það, að bifreiðar eru skrásettar, og um leið og það er gert, er skylt að gefa upp hestorkutölu vjelarinnar. Eftir því á að fara. Þess vegna er hægt að reikna skatthæðina út alveg nákvæmlega af þeim bifreiðum, sem skrásettar eru á landinu, og það var gert, þegar frv. var samið.
Þá er sú mótbára, að þetta sje skattur á framförum. Hvað á að skatta, ef ekki framfarir og framkvæmdir? Á að skatta afturfarir? Ja, þá held jeg nú að lítið komi inn af sköttum. Nei, skatt verður að leggja á, þar sem verðmæti eru til. Af verðlausum hlutum fæst aldrei skattur. Þessi mótbára er því ekki annað en leikur með orð.
Við erum nýbúnir að samþykkja að leggja skatt á skip. Hestar hafa verið skattaðir hjer á landi frá því tíund fyrst var lögleidd. Og ef bornar eru saman tekjur af einum hesti og bifreið, þá er jeg óviss um, hvor skatturinn verður hlutfallslega hærri. Því að flutningsgjöldin með bifreiðunum eru há. Jeg þurfti nú um daginn að fá sjúkling fluttan suður að Vífilsstöðum, og það kostaði 30 kr. Og svo mun vera hlutfallslega um aðrar vegalengdir. Nú er því borið við, að fargjöldin verði að vera há, vegna þess hve vegirnir eru vondir. En þá finst mjer skynsamlegra að leggja nokkuð í sjóð til þess að bæti vegina. Það gæti orðið góður sparisjóður fyrir bifreiðaeigendurna.
Samanburður meiri hlutans á samgöngum hjer og í Danmörku nær engri átt. Danmörk er flatt land, þrefalt minna og þrítugfalt fólksfleira en Ísland. Þar kemst enginn samanburður að, því að ekkert er sameiginlegt. Það er líkt og að bera saman fíl og fló. En úr því verið er að bera saman við Dani, þá vil jeg geta þess, að jeg var að fá ný blöð frá Danmörku, og þar er sagt frá því, að nú sje lagt fyrir danska þingið frv. um hækkun á bifreiðaskattinum, svo að hann á eftir því að gefa í tekjur 7,6 milj. kr. á ári. En þegar við ætlum að fá 50–60 þúsund með samskonar skatti, þá ætla allir að ærast.
Jeg gat þess, að dýrt væri að ferðast með bifreiðunum. Þó upplýsti háttv. 2. þm. Árn. (Þorl. G.) það í háttv. Nd., að ódýrara væri að ferðast að austan í bifreið en á hestum, vegna þess, hve dýrt er að hafa hjer hesta. Enda urðu þeir allir þm. austan yfir fjall meðmæltir frv., einkum eftir að því hafði verið breytt í þá átt að leggja skattinn í sjóð til þess að endurbæta þá vegi, sem bifreiðar nota mest.