07.05.1921
Efri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (978)
28. mál, bifreiðaskattur
Fjármálaráðherra (M. G.):
Jeg sje það, að háttv. þm (G. Guðf.) er það áhugamál að gera sem minst úr þessum skatti og finna honum sem flest til foráttu. Jeg get ekki með nokkru móti fallist á skoðun hv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.) í því að það sje óviðeigandi að leggja skatt á bifreiðar, þótt hjer sjeu engar járnbrautir. Og hvað hinn margfalda skatt snertir, sem sami háttv. þm. (G. Guðf.) talaði um, þá sje jeg ekki, að bifreiðum sje þar vandara um en öðrum hlutum, sem eru fluttir til landsins, og sje jeg ekki t. d., að rjett væri að gera bifreiðum hærra undir höfði í þeim efnum en kornvöru eða öðrum beinum nauðsynjavörum.
Um brtt. er þess að geta, að jeg vil til samkomulags ganga inn á brtt. háttv. þm. Snæf. (H. St.), en vona þó jafnframt, að háttv. þm. Rang. (G. Guðf.) taki sína brtt. aftur.