11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (981)
28. mál, bifreiðaskattur
Frsm. meiri hl. (Þorleifur Guðmundsson):
Háttv. Ed. hefir afgreitt frv. þetta og endursent það þessari deild, þannig breytt, að 8 kr. gjald komi í stað 12 kr. Meiri hluta fjhn. hefir komið saman um að láta þetta ákvæði standa óbreytt eins og það kemur frá háttv. Ed. Hún vill aftur á móti fella niður síðari lið 5. gr., um að mynda sjerstakan sjóð úr skattinum. Jeg gat þess við 3. umræðu, að óþarft sje að hafa sjerstakan sjóð, því að ríkissjóður hefir hvort sem er viðhald veganna, svo að það er aðeins til þess að auka erfiði og störf við reikningshald, að hafa sjerstakan sjóð. Jeg ætla ekki að lengja umræðurnar meira út af þessu atriði, en mun svara, ef ráðist verður á mig.
Þá er 1. brtt. á þskj. 552 frá 1. þm. Reykv. (Jak. M.). Hún fer fram á að lkka gjaldið úr 8 kr. niður í 5 kr. Meiri hl. nefndarinnar er mótfallinn þeirri breytingu, þar sem hann helst vildi hækka gjaldið aftur úr 8 kr., en leggur það þó ekki til, bara vegna þess, að hann vill forða málinu frá því að þurfa að fara í sameinað þing.
Þá er brtt. á þskj. 545 frá háttv. samþm. mínum, 1. þm. Árn. (E. E.). Meiri hl. nefndarinnar hefir athugað hana og sjer sjer ekki fært að taka hana til greina. Þó að mjer þyki leitt að þurfa að leggja á móti háttv. samþm. mínum (E. E.), þá verð jeg þó að gera það, því að ef það er rjett af hinu háa Alþingi að leggja skatt á bifreiðar, þá á sá skattur engu síður að koma niður á bifreiðum sveitamanna heldur en bæjarmanna, því að bifreiðar slíta jafnt vegunum, hvort sem þær eru eign sveita- eða bæjarmanna. Og þar sem eins stendur á, að einstakir menn njóta sömu gæða, þá er sjálfsagt, að þeir beri sömu gjöld.