11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (998)

28. mál, bifreiðaskattur

Magnús Jónsson:

Jeg get sparað mjer að lengja umr. og slept mörgu, sem jeg hafði þó hjá mjer ritað, vegna þess, að hv. samþm. minn, 3. þm. Reykv. (J. Þ.) mintist á það, og kom þar að auki með upplýsingar, sem miklu máli skifta. Annars þótti mjer merkilegt, hvernig háttv. frsm. (Þorl. G.) tók þessum upplýsingum. Hjer er þó sjáanlega um mörg ný atriði að ræða og margar merkilegar upplýsingar, sem sjálfsagt er að athuga, svo þeirra hluta vegna hefði háttv. frsm. (Þorl. G.) átt að biðja um, að málið yrði þegar tekið af dagskrá. Jeg sje ekki betur en að upplýsingar háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) kippi algerlega grundvelli þeim í burtu, er stjórnarfrv. virtist vera bygt á. Þess vegna hefði fjrh. (M. G.) átt að beina því til nefndarinnar, að hún tæki aftur við málinu og athugaði betur þessar upplýsingar. Það er ekki langt að muna, að hv. fjrh. (M. G.) mæltist til, að mál eitt væri tekið af dagskrá vegna lítils misskilnings, sem á hafði orðið. Vilji hann ekki nú taka þetta mál af dagskrá, tekur hann á sig ábyrgðina.

Jeg er ekki að væna stjórnina þess, að hún hafi gefið vísvitandi rangar upplýsingar í þessu máli. En úr því það er sannað, að hæstv. stjórn hefir ekki sjálf rannsakað þetta mál, heldur farið eftir því, sem einhver umboðsmaður hennar hefir sagt henni, og nefndin svo bygt á því, sem stjórnin hafði eftir þessum umboðsmanni, þá ætti háttv. þdm. að vera ljóst, eftir þær upplýsingar, sem nú eru fram komnar, að málið er illa í pottinn búið frá byrjun.

Þess vegna getur það ekki verið af öðru en þráa hæstv. fjrh. (M. G.), ef málið verður ekki tekið af dagskrá og reynt að athuga það betur. Og þó að það dagaði uppi á þessu þingi, tel jeg ekki mikinn skaða, því að þá mætti svo fara, að á næsta þingi yrði það aftur á ferðinni, og þá að líkindum á einhverjum sanngjarnari grundvelli.

Annars vildi jeg spyrja háttv. fjhn., hvort hún hafi nokkuð athugað lög þau, dönsk og norsk, sem að þessu máli lúta, og sem háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) mintist á, því að hafi hún ekki gert það, þá hlýtur hún að hafa bygt á upplýsingum stjórnarinnar, en þær eru, eins og nú er á daginn komið, ónákvæmar og jafnvel villandi.

Ef fylgja á máli þessu fram með kappi og gera frv. nú þegar að lögum, þá vil jeg leyfa mjer að mælast til, að brtt. háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.), um 5 kr. af hverri hestorku, verði samþ., því að þar er þó um dálitla sanngirni að ræða. En heppilegast tel jeg, að málinu yrði frestað til næsta þings, og vona jeg því, að hæstv. fjrh. (M. G.), sem einn má tala, noti þetta leyfi sitt til þess, að málið verði tekið af dagskrá.