23.03.1922
Neðri deild: 30. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (101)
1. mál, fjárlög 1923
Sveinn Ólafsson:
Það voru örfá atriði í ræðu háttv. 1. þm. Skagf. (M.G.) í gærkveldi, sem jeg ætlaði að minnast á.
Jeg hafði tekið afstöðu til brtt. háttv, minni hl. fjvn. um niðurfærslu á launum sendiherrans með þeim fyrirvara, að jeg sæi mjer ekki fært að vera með henni, og gefa þannig tilefni til, að sendiherrann yrði kallaður heim, þar eð nýbúið væri að setja lög um stofnun embættisins.
Háttv. þm. (M.G.) sneri þessum ummælum mínum við á þann hátt, að jeg teldi embættið nauðsynlegt og ómissandi. Ekkert slíkt lá í orðum mínum; jeg var eingöngu á móti þeim hringlandahætti að stofna embætti eitt árið, en afnema það svo hið næsta. Jeg nefndi ekki á nafn brýna nauðsyn embættisins, enda lít jeg svo á að skipun þessa sendiherra sje álíka fljóthugsuð og stofnun hæstarjettar. Hvorttveggja er okkur of dýrt. Annars skiftir þetta atriði ekki svo miklu máli.
Annað, sem jeg hjó eftir í ræðu háttv. sama þm. (M.G.) og þótti athugavert, var skýrsla hans um, að skuldir landsmanna utanlands, að ótöldum samningsbundnum ríkisskuldum, næmu ekki meira en 5 milj. kr. Jeg hygg að þetta sje ágiskun ein, og jeg þori að fullyrða, að tala þessi er þannig tilkomin, að frá aðalupphæð skuldanna, sem vera mun nálægt 22 milj., eru dregnar upphæðir ýmsar, sem líkur eru til, að megi samningsbinda, en engin vissa er um, að verði það. Þess vegna eru sterkar líkur til að fljótandi skuldir sjeu mun meiri en 5 milj.
Jeg mundi ekki hafa fengist um þetta atriði, hefði ekki háttv. frsm. (B.J.) tekið sjer það til tekna og reynt með því að sanna, að bjartsýni hans á fjárhag landsins væri á góðum rökum bygð. — Jeg áfellist að vísu ekki háttv. frsm. þó hann spái góðu um framtíð landsins því það viljum við allir gera, en jeg álít ekki rjett að gylla fjárhagsútlitið frekar en rjettar tölur gefa tilefni til, og mjög tel jeg hæpna og athugaverða spádóma háttv. frsm. Annars var jeg að mestu leyti búinn að svara þessum atriðum í gær, en mjer dettur í hug í þessu sambandi danskt orðtæki, sem segir, að það megi byggja á spádómum veðurathugunarstofunnar, ef maður snúi þeim við eða hefir á þeim endaskifti. Sama er að segja um spádóma háttv. frsm. — Það mætti kannske byggja á þeim, ef maður hefði endaskifti á þeim og legði gagnöfuga merkingu í orðin.
Háttv. frsm. sagði í ræðulok nokkur orð frá eigin brjósti, og voru það mest hnífilyrði til okkar sem lengst viljum halda í sparnaðaráttina. Jeg mundi eigi hafa svarað þeim neinu, hefði hann eigi tekið svo djúpt í árinni að segja, að við sæjum ekki í að fórna mannslífum. Mjer þykir ásökun þessi nokkuð hörð, enda illa viðeigandi af háttv. fjvn., sem hefir lagt til að fórna þeim sjúklingum, sem fátæktar vegna geta ekki vitjað augnlæknis hjer í Reykjavík og átt hafa þá einu batavon, að geta haft not af ferðum hans kring um landið. Ferðastyrk hans vill nefndin fella niður, en hann er einn af þeim fáu upphæðum, sem geta talist í þarfir hinum efnalitlu og umkomulausu. Ásökun þessi, sem annars er rakalaus hjá háttv. frsm., kennir því úr hörðustu átt.
Skal jeg svo fara að loflegu dæmi háttv. fjvn. og ekki lengja umræðurnar meira.