06.04.1922
Efri deild: 38. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (1045)

82. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.

Flm. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Jeg finn mjer skylt að færa háttv. deildarmönnum, sem andmælt hafa frv. mínu, bestu þakkir mínar fyrir mótmælin, því betri meðmæli get jeg ekki kosið. Þessir háttv. ræðumenn hafa annaðhvort alls ekki eða lítið minst á aðalkjarna málsins. Að minsta kosti hefir enginn gert það að neinu gagni, nema ef vera skyldi háttv. þm. Snæf. (H. St.). Þó virtist mjer hann misskilja mig algerlega. Hjer hefir svo að segja eingöngu verið talað um aukaatriðin, svo sem um atvinnu þá, sem Íslendingar fengju við síldarsöltun hjá útlendingum. Jeg hefi aldrei haldið því fram sem neinu aðalatriði. Aðalatriðið er það, hvað rjett er og hvað sæmilegt. Þó er jeg ekki svo stórlátur, að jeg ekki meti það einnig, að Íslendingar fá eina bestu atvinnuna, sem býðst, sem sje við síldarsöltun. Hefir það oft og mundi enn geta numið miklu fje.

Því hefir verið hreyft, að þetta verði aðeins að eyðslufje hjá sumum mönnum, og má það vel vera. En því aðeins væri rjett að gera mikið úr því, ef aðrir peningar yrðu ekki mönnum að eyðslueyri. Jeg fyrir mitt leyti skil ekki eðlismuninn á því, að vinna að söltun á síld eða aðra sjávarútvegsvinnu, svo sem þorskvinnu. Það, sem inn fæst fyrir slíka vinnu, verður einnig oft að eyðslufje. En jeg læt mjer ekki slíkt vaxa svo mjög í augum, því jeg veit, að það eru þúsundir í þessu landi, sem fara vel með fje sitt, er þeir vinna sjer inn um bjargræðistíma þjóðarinnar. Veit, að þeir með því fje ala sómasamlega önn fyrir húsi sínu og heimili. Jeg get fullyrt, að svo er um flesta þá, sem á Siglufirði vinna þó um undantekningar sje vafalaust að ræða. Þaðan kemur fjöldi manns á haustin með fulla vasa af peningum. En þetta er ekki aðalatriðið, heldur hitt, hvort lögin eru rjettlát og hagkvæm.

Jeg hefi fært rök fyrir mínu máli. Hinir hafa engin rök haft fram að færa.

Hæstv. fjármálaráðherra sagði í upphafi ræðu sinnar, að jeg hefði átt að halda ræðu mína í fyrra, er lögin voru samþykt. Nei, nú var einmitt tíminn til þess, af því að í fyrra var fjárhag ríkisins þannig varið, að við gátum ekki hafnað neinu frv., sem miðaði að því að auka tekjur ríkisins, jafnvel þótt það væri ekki rjettlátt. Þess vegna var ekki tímabært þá að halda slíka ræðu, — en nú er það.

Þó að þessi gæsla hefði verið, sem fjármálaráðherra og háttv. þm. Vestm. voru að tala um, þá hefði það ekki leitt til þess, að tollur hefði fengist af þessum 83 þús. tunnum, heldur ef til vill einhverjar sektir fyrir lögbrot.

En aðalatriðið í þessu máli er ekki það, að Norðmönnum þykir tollur þessi óhepplegur, heldur líta Íslendingar einnig á hann sem ósanngjarnan og óviðunandi.

Jeg hjó eftir því hjá hæstv. fjármálaráðherra (Magn. J.), að ekki væri hægt að banna íslenskum ríkisborgurum að fara út úr landhelgi. Slíkt er lítilla þakka vert. — Þetta er vitanlega rjett. En áherslan liggur ekki á því, heldur hinu, að hjer er verið að neyða menn til að fara út úr landhelginni. Jeg sje ekki, að það sjeu nein rök í þessu máli, að ekki sje sáð til síldarinnar. Aðalatriðið er það, að uppskeran er töluvert mikil og kostar mikla fyrirhöfn, án þess að sáð hafi verið.

Háttv. 3. landsk. (S. J.) mótmælti einhverju, sem jeg hafði sagt og hann taldi miður viðeigandi. Jeg vildi ekki hafa hagað orðum mínum svo, að þessi hv. sessunautur minn og vinur hneykslaðist á því, en jeg held, að það sje of mikil tilfinningasemi að móðgast af því, sem jeg sagði. Jeg vildi ekki fara meiðandi orðum um landbúnaðinn eða fulltrúa hans yfirleitt, en jeg taldi vítaverðan þann meting, sem verið hefir milli atvinnuveganna og aðallega hefir verið alið á af flokksblaði sessunautar míns. Jeg sagði ekki, að landbúnaðurinn væri sníkjudýr eða vildi vera það, en ýmsir þeir, sem þykjast vera leiðtogar hans, vilja láta hann verða það, og það er dálítið annað.

Þá vil jeg vísa á bug ummælum háttv. þm. Snæf. (H. St.), að ræða mín hefði frekar verið flutt fyrir Norðmenn en Íslendinga. Jeg var stórhissa á þessum miður viðeigandi ummælum, og stórhissa á því yfir höfuð, hve ummæli mín hafa verið fljót að leka úr honum.

Jeg flyt þetta frv. af því, að jeg tel það hefði verið þinginu til skammar, ef það hefði ekki komið fram. Jeg veit, að öðrum hefði átt að standa það nær, en úr því að þeir gerðu það ekki, þá geri jeg það. Jeg geri það ekki af hvötum neinna annara en sjálfs mín. Jeg bjóst ekki við, að jeg þyrfti að upplýsa það.

Það var rangt hjá háttv. þm., að tollurinn væri aðeins ein króna, ef enginn hagnaður væri, því að þá fengju útgerðarmenn endurgreidda tvo þriðju, en ef hagnaðurinn er nákvæmlega 3 kr. á tunnuna, þá verður tollurinn 3 kr. og hagnaður enginn.

Þá var það ekki rjett, að jeg hefði verið að fárast yfir útflutningsgjaldinu. Jeg mun sjálfur mjög bráðlega leggja til, að það verði samþykt. Jeg benti aðeins á það til samanburðar og gat þess, að þó að margir teldu það varasamt, þá væri síldartollurinn þó miklu ósanngjarnari. Það hefi jeg sýnt fram á með rökum, sem ekki hafa verið hrakin.