06.04.1922
Efri deild: 38. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í B-deild Alþingistíðinda. (1047)

82. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.

Flm. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Örfá orð út úr síðasta atriði í ræðu háttv. þm. Snæf. (H. St.). Jeg hefi bent á það, að fyrir 1921 höfðu útlendingar ekki þá aðferð að koma sjer undan tolli með því að salta utan landhelgi, og er óhætt að setja þá aðferð þeirra í samband við 3 kr. tollinn. Það mæla því allar líkur með því, að ef tollurinn verði lækkaður, flytji þeir aftur inn í landið.

Það er vitanlega ómögulegt að sanna þetta, því að það er óframkomið, en það er hugsunarrjett að álykta, að svona muni fara. Lengra verður ekki komist í þessu efni.

En þó að þetta kæmi Norðmönnum ekkert við, þá vil jeg vara háttv. þdm. við því að taka svo þrælslega fyrir kverkar eins af atvinnuvegum landsins, en það er gert, ef þessi tollur er látinn halda áfram svo hár.