23.03.1922
Neðri deild: 30. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í B-deild Alþingistíðinda. (110)
1. mál, fjárlög 1923
Frsm. (Bjarni Jónsson):
Jeg skal nú tafsa svo jeg tefji ekki. Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv.Ó.) þarf jeg ekki að svara, því að orð mín standa óhrakin þó að veðurfræðin í Firði standi á höfði.
Háttv. 2. þm. Húnv. (Þór.J.) þótti það sjálfshól hjá mjer, þótt jeg þættist sjá lengra en alblindir menn. Raunar sagði jeg að jeg sæi stundum lengra en menn sem fæddir væru blindir, og er það talsvert annað, því að þeir eru miklu blindari og alveg útilokaðir frá allri rjettsýni. Það er því auðsætt, að þetta var ekkert sjálfshól.
Þá vitnaði hann í ræðu eftir mig, þar sem jeg bauðst til að taka að mjer sendiherrastarfið fyrir þessi laun. Þetta er rjett en jeg hefi ekki fyr sagt, hvað mjer gekk til, er jeg bauð þetta. En nú skal jeg segja það. Jeg sá ekki annað en við borð lægi sú þjóðarhneysa að hafa engan sendiherra, og þá vildi jeg heldur treysta á lánstraust mitt og safna skuldum. Það var sjálfsfórn til bjargar landi mínu, líkt og sparnaðarmennirnir vilja nú fórna mjer til viðreisnar fjárhagnum.
En það er að þakka háttv. þm. Borgf. (P.O.), að jeg tók það ekki og hefir hann bjargað með því fjárhag mínum. En það get jeg sagt í fullri alvöru, að síðan jeg var í þjónustu landsins hjer um árið, hefir mig ekki fýst til þess. Jeg geri það sökum fátæktar, en mun segja því starfi af mjer jafnskjótt og jeg get.
En jeg veit, að háttv. þm. ætlast ekki til þess, að þessi till. verði samþykt, heldur er hún aðeins borin fram til þess að minna á sparnaðinn og sýna, að þm. sjeu honum trúir.
Þá kem jeg að háttv. þm. N.-Ísf. (S.St.). Mun jeg lítið taka hann til bænar að þessu sinni, enda er jeg ekki jafnvanur þeim starfa og hann; þó mætti vera að jeg hugsaði til hans síðar. En út af þessari reynslu, sem hann var að tala um, vil jeg geta þess, að jeg studdi mína áætlun við skoðun erlendra fjesýslumanna, sem kemur alveg heim við útreikning hagstofunnar og beggja bankanna. Svo að þetta er ekki fleipur hjá mjer.
Um bifreiðaskattinn skal jeg láta þess getið, að hann kom til umr. í nefndinni, en hún ljet sjer það lynda, að hann væri innifalinn í útgjöldunum til flutningabrautanna, en annars er auðvitað ekkert rangt við það, þó að hann sje tekinn upp sjerstaklega.