06.03.1922
Neðri deild: 15. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í C-deild Alþingistíðinda. (1101)
22. mál, umræðupartur Alþingistíðinda
Frsm. minni hl. (Þorleifur Guðmundsson):
Jeg held helst af orðum hv. frsm. meiri hl. (Jak. M.), að hann hafi alls ekki hlustað á alla ræðu mína. Annars man jeg ekki, hvort jeg gat um það — en það var meining flutningsm. þessa frv. — að Alþt. yrðu í framtíðinni alls ekki prentuð, nema þá að Alþingi síðar meir sæi sjer fært að taka prentunina upp aftur. Við getum ekki betur gert en að leggja brautina, en komandi Alþingi verða sjálf að ákveða, hvort það skuli vera haldið áfram á þeirri braut.
Það er annars ekki rjett, að jeg segði, að jeg vildi helst, að öll prentlist legðist niður í landinu. Það sagði jeg aldrei, en hitt sagði jeg, að það mundi lítið saka, þótt svo drægi úr henni, að ekki væri hægt að gefa út hvert og eitt af þessum svo nefndu sögu- og ljóðabókum, sem eru frekar til niðurdreps en uppbyggingar þjóðinni.
Hv. frsm. meiri hl. (Jak. M.) sagði, að jeg hefði látið í ljós, að eigi ætti að styrkja prentsmiðjurnar. Þetta atriði kom alls ekki til mála. Jeg sagði, að það væri ekki ætlast til, að prentsmiðjurnar lifðu á styrk af almannafje, að prentarar heyrðu ekki til launaliði ríkisins. Jeg hefi þessi orð mín upp aftur af því, að jeg býst við, að hv. frsm. meiri hl. (Jak. M.) hafi ekki heyrt þau.
Hv. frsm. meiri hl. (Jak. M.) sagði, að þessir 115 kaupendur Alþt. hlytu að minsta kosti að skera upp úr þeim. En um það efast jeg stórlega. Jeg þekki að minsta kosti þrjá menn í mínu bygðarlagi, sem eru áskrifendur og skera ekki upp úr nema þeim einum köflum, þar sem þeir búast við, að talað hafi einhver þeirra manna, sem taldir eru ræðumenn. En oft vill verða, að það er hvorki skynsamlegast eða heillavænlegast, sem þeir segja.
Eins og áður er tekið fram, eru áskrifendur ekki fleiri en 115, en Alþt. kosta ekki meira en 3 krónur, eða sem svarar burðargjaldi og umbúðum. Ef menn kærðu sig nokkuð um ræðurnar, mundu því áskrifendurnir skifta þúsundum.
Hv. frsm. meiri hl. (Jak. M.) hefir með ýmsum krókaleiðum þóst finna út, að kostnaðurinn við prentun ræðupartsins næmi ekki meira en 10 þús. kr. þó svo væri, væri samt töluverður sparnaður að því að hætta við prentun á honum. En jeg játa ekki, að kostnaðurinn fari niður úr 30 þús. kr., meðan prentarar halda því kaupgjaldi, sem nú tíðkast. En sístur allra ætti ríkissjóður að verða til þess að halda kaupinu uppi, þar sem það er hæst.
Auk þess er ekki öll sagan sögð, þó talin sje prentun og pappír. Þar við bætist útsending, umbúnaður og umbúðir, og þó að það skifti ekki þúsundum, skiftir það að minsta kosti hundruðum.
Því er oft haldið fram, að ekki taki að spara hundruð eða smáupphæðir í fjárlögum, en gæta ber þess, að ef aldrei er sparað í smáu, þá verður lítið úr sparnaðinum, sökum þess að hinar stærri upphæðir eru flestar lögbundnar.
Jeg skal svo ekki lengja meira umr. um þetta mál, enda er jeg sannfærður um, að hv. deild muni fallast á till. minni hl. nefndarinnar.