09.03.1922
Neðri deild: 18. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í C-deild Alþingistíðinda. (1107)

22. mál, umræðupartur Alþingistíðinda

Frsm. minni hl. (Þorleifur Guðmundsson):

Jeg sje, að það þýðir ekki fyrir mig að vera að berja höfðinu við steininn. En jeg vona, að hv. deild samþ. frv.

Skrifstofa þingsins hefir enga reynslu í þessu máli, því að þetta hefir aldrei komið fyrir áður. En það traust ber jeg til hæstv. forseta þingsins, að þeir láti ekki kúga sig eða setja sjer afarkjör um prentun skjalapartsins. Það má þá gjarna koma fram með frv. um að fella niður prentun hans líka En jeg vil ekki láta eina stjett ráða alveg, og ef ein stjett á að ráða yfir Alþingi, þá er það annað en jeg hafði hugsuð mjer.

Jeg viðurkenni það, að prentlistin er göfug list, en hinu má ekki gleyma, að mörgu illu hefir prentlistin komið inn hjá þjóðinni.

Og ef þetta frv. verður felt, þá megum við búast við að hrapa aftur á bak af sparnaðarbrautinni niður í eyðsludýkið.