25.02.1922
Neðri deild: 9. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í C-deild Alþingistíðinda. (1136)
30. mál, fjárhagsár ríkissjóðs
Fjármálaráðherra (M. G.):
Jeg hefi oft um það hugsað og til þess fundið að reikningsár vort er óhentugt vegna samkomudags Alþingis. En ástæðan til þess, að jeg hefi ekki komið með till eða frv. um að breyta þessu, er sú, að jeg hefi ekki verið viss um, nema bráðlega mundi aftur verða breytt um þingtímann. Nú hefir mjer heyrst á ýmsum háttv. þm., að þetta muni ólíklegt vera, því að hinn núverandi þingtími falli vel í geð. Að þessu athuguðu get jeg lýst því yfir, að jeg muni fylgja frv., en jeg er hræddur um, að nauðsynlegt verði oftast nær fyrir stjórnina að nota heimild stjórnarskrárinnar um að kalla þing saman fyr á árinu en 15. febrúar, því að þegar fjárlögin þurfa að vera staðfest fyrir 1. apríl, leiðir þar af, að þau þurfa að vera samþ. af þinginu nokkru fyr, til þess að tími sje til að fá konungsstaðfestingu á þeim, en til þess þarf að senda þau til Kaupmannahafnar.
Jeg veit nú ekki, hvernig háttv. þm. þykir það að geta átt von á því, að Alþingi byrji t. d. um miðjan janúar, en það get jeg búist við að verði afleiðing frv., ef samþ. verður. Mjer hefir dottið í hug, til að forðast þetta, að hafa reikn.árið frá 1. júlí–30. júní, en að öllu athuguðu, mun það reikningsár, sem frv. ráðgerir, vera heppilegra, þótt það hafi að sumu leyti sömu galla og reikningsárið 1. júlí–30. júní, sjerstaklega um undirbúning allra verklegra framkvæmda.
Jeg hafði hugsað mjer, að málið ætti heima í fjárhagsnefnd, en ef hv. deild kýs heldur allshn., geri jeg það ekki að ágreiningsatriði.