10.03.1922
Neðri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í C-deild Alþingistíðinda. (1159)

45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra

Sveinn Ólafsson:

Jeg hygg að það orki allmjög tvímælis, að háttv. fjvn. stefni til sparnaðar með þessu frv. Mjer virðast ástæður hv. fjvn. sýna, að fyrir henni vaki ekki sparnaður, heldur hitt fyrst og fremst, að fá með frv. færi til þess að bíða eftir betri og hagfeldari skipun fræðslumálanna. Segi jeg þetta vegna þess, að í frv. eru ákvæði um, að kennarar skuli ekki missa neins í við lögfesting frv. Þetta mundi hafa horft annan veg við, ef fjvn. hefði ætlað sjer fyrst og fremst að spara með frv., og þó að ríkissjóði sparaðist eitthvert fje við lögfesting frv., þá kæmi þunginn af barnafræðslunni þeim mun þyngra niður á hjeruðunum, svo framarlega sem kennarar eiga einskis í að missa af launum sínum. Sparnaðurinn er því eins og að taka frá einni kirkjunni og gefa annari.

Um hitt atriðið get jeg verið fjvn. sammála, að heppilegast væri að geta frestað framkvæmd fræðslulaganna að nokkru, og laga um skipun og laun barnakennara frá 1919, úr því að skipuð hefir verið milliþinganefnd til þess að athuga mentamálin og nýja skipun þeirra. Það er ekki nema eðlilegt, að menn vilji sjá niðurstöður milliþ.nefnd. og meðferð þingsins á þeim. Í ástæðum frv. er sagt, að núverandi fyrirkomulag megi ekki festast. Jeg skil það vel. Þetta er tekið fram vegna þess, að nefndin hefir sjeð, að fyrirkomulagið er í raun og veru orðið fast, þegar lögin um skipun og laun barnakennara eru komin í framkvæmd og kennarastöðurnar veittar. Þá er óhægt að breyta til í þá átt, sem frv. fer fram á, þó menn gjarnan vildu.

Jeg skal kannast við það, að jeg stend mjög nærri skoðun hv. þm. Dala. (B. J.) í því, að heimilin geti tekið að sjer mikinn hluta þeirrar undirbúningsfræðslu, sem barnakennarar veita nú. En jeg get ekki gengið inn á það með hv. þm. (B. J.), að skólarnir hafi spilt börnunum eða valdið öðru tjóni, nema þá að því leyti, sem þeir hafa tekið ábyrgðartilfinninguna af heimilunum og vanið þau af kenslustörfum. Nú virðist mjer, að ef það fyrirkomulag kemst á um unglingafræðslu, sem milliþinganefndin leggur til að komið verði á, þá verði oss ofurefli að bæta því ofan á barnafræðsluna, svo dýra og umfangsmikla sem hún er. Enda rekur oss enginn nauður til þessa, því það tel jeg efalaust, að heimilin til sveita geti að miklu leyti tekið að sjer barnafræðslu þá, sem krafist er til staðfestingar.

Jeg get ekki sjeð, að frv. þetta, eins og það liggur nú fyrir, leiði til nokkurs sparnaðar nje heldur, að það nái í þessari mynd tilætluðu marki. Mjer hefir því komið það til hugar, hvort eigi megi ná takmarki frv. með annari leið, nefnilega þeirri, að binda sig ekki við fræðslufyrirkomulagið núveranda, en breyta því í nokkrum atriðum til rýmkunar um skólaskyldu, og láta óveittar kennarastöðurnar, þar til tími hefir unnist til að endurskoða lögin frá rótum. Mjer hefir því komið til hugar að bera fram svo felda dagskrá:

Í því trausti, að stjórnin fresti veitingu á kennarastöðum þar til lög um skipun kennara og laun þeirra, frá 28. nóv. 1919, hafa verið endurskoðuð í sambandi við breytta skipun alþýðufræðslu og samband barnafræðslunnar við fyrirhugaða unglingafræðslu, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.

Jeg þykist hafa gert nægilega grein fyrir því, hvers vegna jeg hefi komið fram með þessa rökstuddu dagskrá, og þarf því ekki að fara fleiri orðum um þetta að sinni.