10.03.1922
Neðri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (1162)
45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra
Þorsteinn Jónsson:
Í lok síðasta fundar hjelt hv. þm. Dala. (B. J.) alllanga ræðu til að svara því, sem jeg hafði sagt. Hann hóf mál sitt með því að segja, að hann sæi fyrir sjer ýmislegt, sem jeg hefði sagt, en hann hafði farið út, eins og hans er vandi, þegar hann hefir slæmt mál að verja. En hann hefir því hlotið að hafa „diktafón“ til að taka á móti því, sem jeg sagði, og látið hann svo skýra sjer frá máli mínu. En sá „diktafónn“ hefir ekki verið af bestu tegund, því að hann hefir rangfært orð mín eigi alllítið.
Hv. þm. Dala. (B. J.) kom eigi með neinar nýjar röksemdir, máli sínu til stuðnings, en ljet sjer að eins nægja að láta hv. deild skilja á sjer, að hann einn hefði visku að geyma til að miðla af, í þessu máli sem öðrum.
Jeg skal samt taka til athugunar einstök atriði í ræðu hans.
Hann hjelt því fram, að fræðslulögin frá 1907 hefðu verið flaustursverk, samin undirbúningslaust. Hann virðist halda, að þingið hafi þá farið líkt að ráði sínu og fjvn. ætlar nú að gera, flana að málinu rannsóknar- og undirbúningslaust. — En sannleikurinn er sá, að fræðslulögin frá 1907 höfðu ekki haft minna en 20 ára undirbúning, eða alt frá 1887, er Alþingi kaus milliþinganefnd, er skyldi vinna að þessu máli. Hlutu sæti í henni þeir Hallgrímur biskup Sveinsson, sjera Þórarinn Böðvarsson, sjera Eiríkur Briem, Jón Ólafsson og Jón Þórarinsson, núv. fræðslumálastjóri. Þegar hún hafði lokið starfi sínu, kom hún fram með frv. það, sem lagt var til grundvallar undir lögin frá 1907. Orsökin til þess, að þingið ekki þá þegar samþykti lögin, var ekki sú, að þingið áliti, að tekin væri upp röng stefna, heldur strandaði alt á fjárskorti. Það var peningaleysið og ekkert annað, sem varnaði málinu framgangs. — Undir aldamótin tók kennarafjelagið málið að sjer, þ. e. a. s. ekki barnakennarar, heldur latinuskólakennarar og kennarar við æðri stofnanir, sem hv. þm. Dala. (B. J.) ef til vill metur nokkurs hvað segja. Var þá mikið um málið rætt og ritað. Þrem árum fyrir aldamótin var skipuð nefnd til að semja frv., er Alþingi skyldi taka upp. Þá var málið lagt undir dóm margra manna, sem Alþingi áleit að mest hefðu vit á þessu máli, t. d. margra presta, gagnfræðaskólakennara, latínuskólakennara o. fl. Áður hafði stjórn kennarafjelagsins sent fyrirspurnir um málið út um sveitirnar. Ein af fyrirspurnunum, sem út voru sendar, var um það, hvort menn álitu, að fræðslu í sveitum hefði hnignað eftir að kennarar tóku við henni, og ef svo væri, þá hvers vegna. Jeg skal geta þess, að farkennarar voru þá víða um sveitir. En svörin, sem komu, voru einróma þess efnis, að fræðslan hefði aukist síðan kennarar komu, og ástæðan til þess væri, meðal annars, að meiri alúð væri lögð við kensluna á heimilunum en áður hefði verið.
Eins og jeg tók fram í gær, er nauðsynlegt, að skólafræðsla og heimafræðsla haldist í hendur, ef vel á að vera um fræðslu barna okkar.
Ein spurningin hljóðaði um, hvort menn undir nokkrum kringumstæðum álitu, að skólakenslan gæti dregið úr heimafræðslunni, en því var einróma neitað.
Síðasta spurningin var um, hverjir væru helstir agnúar á barnaskólum og hvernig væri vænlegast að nema þá burt.
Hvað umferðakenslu snertir, voru agnúarnir taldir helstir, hversu ilt væri að sameina börn til kenslunnar, þar sem kenslustaðirnir væru svo margir. Hygg jeg, að ekki sje hægt að bæta úr því svo að verulegu gagni komi, nema með því að setja á stofn fasta sveitaskóla.
Til þess að sýna almenningsálitið um þetta efni fyrir 1907 skal jeg með leyfi hæstv. forseta lesa upp nokkur orð úr brjefi stjórnar Kennarafjelagsins, sem sent var út um landið með fyrirspurnunum, sem áður eru nefndar:
„Það er mjög fjarri því, að heimilin sjeu, eins og nú er komið, einfær um að leysa uppeldisstarfið af hendi. Altaf eykst þörfin á utan að komandi hjálp meira og meira.“
Þá þegar, fyrir 20–30 árum síðan, álitu menn, að heimilin væru ekki einfær um að uppfræða börnin, heldur þyrftu þau hjálpar með, ef vel ætti að vera.
Sá árangur varð af starfi kennarafjelagsnefndarinnar, að málið kom fyrir þing 1905. Þótti þá ekki rjett að útkljá málið þegar, heldur rannsaka betur hugi manna úti um land, áður en endanleg ákvörðun yrði tekin. Var málið þá rætt á hjeraðsfundum, og sýslunefndir, gagnfræðaskólinn á Möðruvöllum og latínuskólinn höfðu það til meðferðar. Öll þessi rannsókn og umsagnir, sem fram höfðu komið, var svo lögð til grundvallar, er lögin frá 1907 voru samin.
Jeg vona því að hv. deild sjái, að hv. þm. Dala. (B. J.) hafi ekki farið með rjett mál í gær, er hann sagði, að málið hefði verið óundirbúið 1907, er fræðslulögin voru samþykt, svo að ef þekking hans á öðrum sviðum er jafnmikil og jafnsamviskusamlega með hana farið, býst jeg við, að menn byggi ekki eins á henni og áður, og enda þótt sá góði maður hafi mikinn fróðleik til að bera, skortir hann samt algerlega vit á þessu efni, og farnast því líkt og mjer myndi fara, ef jeg ætlaði að fara að segja honum, hvernig hann ætti að kenna grísku við háskólann.
Háttv. þm. Dala. (B. J.) tók fram, að hann tryði betur prestunum til að fara með fræðslumálin, jafnvel þó þeir gætu ekki tekið þau að sjer. Ef prestarnir eiga að taka barnafræðsluna að sjer, þá yrði að fjölga þeim svo mjög, að þeir yrðu þrefalt fleiri en nú. Auk þess sagði hann margt, sem átti að vera fyndið og sanna, að tillögur mínar væru á litlu viti bygðar. Hann ætlaði að sýna, að ómögulegt væri að reikna út einfalt rúmmál, t. d. að reikna út stærð kassa, ef menn kynnu ekki reikning nema með heilum tölum og brotum. En jeg hygg, að enginn ætli, að það þurfi neinn afskapavísdóm til að reikna út kassarúmmál eða önnur einföld rúmmál og einföld flatarmál. Þá sagði hann, að það væri ókostur við skólana, að gáfuð börn og treggáfuð væru látin vera þar saman. Er það rjett, og sá ókostur er þeim mun meiri, sem skólarnir eru stærri, en þessi ókostur fylgir öllum skólum, æðri og lægri.
Einnig tók hann fram, að við værum svo ólíkir öllum öðrum þjóðum, að skólar okkar yrðu líka að vera það. Við höfum að vísu búið hjer í þúsund ár, en erum samt líkir frændum okkar í flestum greinum, að minsta kosti ekki ólíkari þeim en hv. þm. Dala. (B. J.) er öðrum Íslendingum. Þá lagði hann mikið út af því, hversu skólarnir spiltu heilsu barnanna og siðferði þeirra. Viðvíkjandi heilsunni skal jeg svara því, að óhraust barn hefir auðvitað ekki gott af að ganga í skóla, en það er ekki alment hjer, að skólar spilli heilsu barnanna, eins og háttv þm. Dala. (B. J.) hjelt fram. En um það mál er erfitt að deila með nægilegum röksemdum, því að til þess þyrfti skýrslur um heilsu barna í öllum skólum landsins. En slíkar skýrslur eru eingöngu til frá Sauðárkróki. Skólastjórinn þar, Jón Björnsson, hefir um nokkur ár gefið skýrslur, sem sýna framför barnanna á vetrar- og sumarmánuðum, hvað snertir hæð, þyngd, efling, brjóstvídd og andaukning.
Mjer til mikillar undrunar hefir það sýnt sig þar, að skólabörn hafa ekki þroskast minna þá 6 mánuði, sem þau ganga í skóla, heldur en hina mánuðina, heldur þvert á móti.
Jeg hefi hjer hjá mjer tölurnar um þroskun barna í Sauðárkróksskóla frá árinu 1920, og kemur þar í ljós, að börnin hafa lítið eitt minna hækkað vetrarmánuðina en sumarmánuðina, en þyngd, efling, brjóstvídd og andaukningu hefir aftur á móti farið mun meira fram um vetrarmánuðina heldur en á sumrin. Leikfimikensla hefir auðvitað átt mestan þátt í þessum framförum. Vitanlega er ekki með þessu sagt, að skólagangan geti ekki haft einhver ill áhrif á heilsufar barna. Jeg man t. d. eftir því, að læknir einn varð var við hryggskekkju í nokkrum börnum í einum barnaskóla. Þetta gæti verið skólagöngunni að kenna og stafað af því, að of veikluð börn væru látin ganga í skóla, eða þá af því, að sæti væru óhentug og börnin ekki látin sitja rjett. Börn mega heldur ekki sitja mjög lengi í skóla á hverjum degi. Það getur orðið hættulegt fyrir heilsu þeirra.
En sú hætta vofir alveg eins yfir, ef börnunum er haldið mjög strangt að náminu á heimilunum. Og það verður einmitt miklu fremur, ef þessi breyting kemst á. Jeg man eftir því áður en fræðslulögin komu, að þá voru oft teknir kennarar á heimilin, en óvíða nema stuttan tíma í einu, og var þá oft lagt hart að börnunum, til þess að nota þann stutta tíma, sem um var að ræða. Og ekki var nú alstaðar góðum húsakynnum nje heilbrigðisháttum fyrir að fara þá á heimilunum, frekar en í skólunum nú; miklu frekar hið gagnstæða.
Í þessu sambandi má minnast þess, að skólaskyldan hjá oss er ekki ströng móts við það, sem er víða í öðrum löndum. Og eitthvað má þó víst marka af reynslu annara þjóða í þessu efni. Sú þjóð, sem fremst hefir verið talin um marga hluti hjer í álfunni, sem er Þjóðverjar, hefir einmitt haft skólaskyldu lengst allra þjóða. Þar eru kennaraskólar búnir að standa á 4. hundrað ára. Ef það væri nú þeirra reynsla, að skólaskylda og skólaganga skemdi börnin, hví mundu þeir þá ekki fyrir löngu vera hættir við slíkt? Varla eru þó heimilin svo gersamlega ófær þar, fremur en hjer, til þess að fræða upp börnin. Þeir mundu að minsta kosti ekki setja það fyrir sig að leggja skólana niður, ef þeir hefðu sannreynt það, að börnin spiltu þar heilsu sinni, glötuðu siðferði sínu og yrðu heimskari en ella.
Þá vildi jeg með fáum orðum minnast á ræðu hv. þm. N.-Ísf. (S. St.). Hann kvað frv. eiga í engu að raska fræðslugrundvelli vorum, og væri það eingöngu fram komið sparnaðar vegna. Það virðist þá svo, sem hv. frsm. (B. J.) hafi alveg misskilið sitt eigið afkvæmi. Hann sagði sem sje, hv. frsm., (B. J.), að frv. væri eingöngu komið fram til þess að breyta fræðslukerfinu í landinu, og það er rjett. Og um sparnaðinn segja ástæður frv. skýrast. Enginn má missa neins í við það af þeim, sem að kenslu vinna, og það ríkisfje, sem losnar, þykist hv. fjvn. ætla að setja í unglingaskóla. Niðurstaðan verður því sú, að hreppar og einstakir menn verða að kosta meiru til en áður, en ríkissjóður hinu sama. Hvar er þá sparnaðurinn? Jeg verð því að gera ráð fyrir, að hv. frsm. (B. J.) hafi ekki sagt annað nje meira en hann mátti segja, og þá hefir hann hrakið þessa röksemd samherja síns, hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) Og satt að segja efast jeg um, að sá sparnaður, að taka svo sem ¼ milj. kr. af ríkissjóði og demba á hreppana, yrði alstaðar með þakklæti þeginn.
Þá vildi hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) halda því fram, að menn hefðu áður komið betur undirbúnir í skóla en nú, og nefndi í því sambandi Möðruvallaskóla. Jeg veit vel, að margir ágætismenn voru í þeim skóla, en talsvert hygg jeg að þeir hafi orðið að bæta við sig að námi frá því, sem alment var hægt að fá á heimilum, til þess að komast inn í skólann. Annars held jeg, að sumum hv. þm. hætti við að líta fullbjörtum augum á þessa gömlu tíma. Sjálfir eru þeir margir frá bestu heimilunum í landinu, og hættir við að miða alt við þau, en gleyma því, að flest önnur heimili í landinu áttu ekki eins hægt með að láta börnum sínum sæmilega fræðslu í tje.
Nokkuð af andúð manna gegn barnaskólunum kann líka að liggja í því, hve nýir þeir eru. Áður var það almannarómur, að þeir, sem færu í Möðruvallaskóla og búnaðarskólana, yrðu letingjar, sem ekki vildu vinna ærlegt handtak. Þá níddu menn gagnfræðaskólana og búnaðarskólana af því, að þeir þektu þá ekki. Nú er það hætt, en röðin komin að barnaskólunum.
Hv. 1. þm. S.-M. (Sv.Ó.) sagði, að fjvn. mundi leggja til, að fimm alþýðuskólar yrðu styrktir af ríkisfje. Þar við er það að athuga, að sumir þeirra eru nú eingöngu reknir fyrir ríkisfje, svo sem Eiðaskólinn, og ríkinu er skylt að kosta hann að öllu leyti.
Ef frv. nær fram að ganga, þá kemur sú breyting, er af því leiðir, mest niður á þeim fátækustu. Þeir hafa minstan tíma og tækifæri til þess að fræða sjálfir börn sín. Þeir eru einyrkjar og hafa ekki ráð á að hafa vinnufólk til þess að vinna heimilisstörfin, og þeir hafa ekki efni á að halda kennara. Svo þegar vorið kemur og presturinn á að fara að prófa, ef það verður þá, eins og hv. nefnd ætlast til, eitthvað meira en nafnið, þá reynast þessi veslings börn of fákunnandi. Þá eiga foreldrarnir að sæta sektum, — alt að 1000 krónum. Er þá hætt við, að eignir sumra fátæklinganna hrykkju skamt, jafnvel til þess að greiða sektina, og hvað þá líka fyrir því, sem á eftir kemur. Því að sagan er ekki úti enn. Þessu næst á að taka barnið af heimilinu og láta kenna því, — vitanlega á kostnað foreldranna. En hvar á að kenna því? Frv. skipar svo fyrir, að börn skuli tekin af heimilunum, ef heimilin kenna þeim ekki lögboðin fræði, en það gerir enga ráðstöfun til þess, að hægt sje að koma börnunum fyrir. Þess vegna hefir það verið nefnt „frumvarp til laga um útburð barna“.
Jeg þykist nú hafa sýnt fram á það, að fræðslulögin voru ekki sett á án undirbúnings nje rannsóknar, eins og hv. frsm. (B. J.) hjelt fram. Ennfremur er öllum hv. þm. það vitanlegt, að síðasta rannsóknin, sem þeir gerðu próf. Guðm. Finnbogason og próf. Sig. Sívertsen, er ekkert smáræði, og árangur hennar bendir einróma í þá átt, að halda beri fræðslulögunum með smávegis breytingum. Jeg verð því að telja það næsta djarft af einni nefnd á þingi að ákveða það á einum fundi og umræðulaust, að sagt er, að kasta fram þessu frv. Slíkt flaustur verður ekki til þess að vekja traust manna á þinginu.