10.03.1922
Neðri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í C-deild Alþingistíðinda. (1163)
45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra
Frsm. (Bjarni Jónsson):
Hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) lagði hjer fram till. til rökstuddrar dagskrár og hafði um leið við nokkur ummæli, sem jeg verð að vekja athygli hv. deildar á.
Þessi hv. þm. (Sv. Ó.) er hinn mesti sparnaðarmaður, svo sem hv. þm. muna, nema þegar um er að ræða hreppstjóra nokkra í S.-Múlasýslu. Þess vegna furðar mig á því, að hann skuli ekki meta það neins að spara 200 þús. kr. En þá upphæð mun samþykt þessa frv. spara ríkissjóði. Þetta tel jeg gott fyrir sparnaðarmennina að athuga. Jeg nefndi þetta að vísu ekki í gær sem höfuðástæðu nefndarinnar, heldur hitt, að bæta fræðslu í landinu, og það er rjett. En þó hefir hitt vitanlega vakað fyrir nefndinni líka.
Nú vill hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) spara líka, svo sem vitanlegt var. En sá munur er á honum og nefndinni, að hann vill spara með því að kasta öllum kennurum út á gaddinn, en það vill nefndin ekki. Hún telur þá aðferð, að láta alt bitna á kennurunum einum, ekki samandi, hvorki sjer nje Alþingi. Veit jeg það, að þetta er hægt að gera, vegna þess, að stjórnin hefir beitt kennara órjetti, með því að setja þá ár eftir ár. Hún átti að skipa þá síðara árið. En þann órjett á ekki að bæta með því að níðast á þeim.
Fjárveitinganefndin gerir engar tillögur um þessa liði fjárlaganna fyr en hún hefir sjeð atkvgr. hjer í deildinni um þetta. Hv. þm. sýna nú með atkv. sínum, hvort þeir meta nokkurs 200 þús. kr. sparnað eða eigi. Verður einkum veitt athygli þeim, sem altaf láta hæst um sparnað. Því að það má jeg vel segja, að þetta verður sá sparnaður, sem jeg hefi nefnt, enda þótt lagt verði drjúgum meira til unglingafræðslu en nú er. Þá fæst sama fræðsla fyrir staðfestingu og nú er, en miklu meiri eftir þann tíma, — og sú fræðsla er miklu haldbetri, — og þó þarf ríkissjóður ekki að leggja fram nema helming þess, sem nú er. Jeg hefi vitanlega ekkert á móti því, ef menn vilja leggja 200 þús. kr. fram í viðbót til unglingaskólanna og halda barnaskólunum líka. En jeg tel því fje betur varið, sem fer í unglingaskólana. Það er því tilgangur þessa frv. að fá betri árangur fyrir minna fje.
Annars er það að segja um þessa dagskrártill. hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), að það er tilgangslaust að vísa þessu máli til stjórnarinnar. Hún hefir ekkert meira vit á því en fjárveitinganefnd eða þá hv. deild (Forsrh. (S. E.): Stjórnin hefir betur vit á því en hv. þm. Dala.). Jeg get nú ekki farið að ganga í mannjöfnuð við hæstv. forsætisráðherra (S. E.); hygg jeg þó, að jeg geti tekið hann á knje mjer og kent honum sitt af hverju. En úr því að hann treysti sjer til að vera kenslumálaráðherra, þá skal hann ekki láta sig undra, þótt jeg treysti mjer til að bera fram þetta frv. við sjöunda mann.
Úr því að jeg er að tala við hæstv. forsrh. (S. E.), þá er rjett, að jeg minnist á eitt atriði í ræðu hans í gær. Hann kvaðst ekki skilja það, hví svo er kveðið að í greinargerð frv., að núverandi skipun fræðslumálanna megi ekki festast. Telur hann kerfið þegar fast orðið. Jeg verð nú að minna hann á, að þessum lögum, sem sett voru 1907, var frestað í tvö ár 1909, og síðan hafa breytingar á þeim altaf legið við borð. Tvisvar hafa hjer á Alþingi verið samþ. þál.till. um það efni. Hin síðari þeirra leiddi til þeirrar rannsóknar og endurskoðunar, sem fram fór á síðasta ári.
Festan er þá í því fólgin, að altaf hefir verið gert ráð fyrir breytingum.
Einhver hv. þm. sagði, að allar þjóðir yki nú fjárframlög til barnafræðslu. Ekki kemur það heim við gerðir sparnaðarnefndarinnar ensku. Hún leggur til, að sparað verði stórfje einmitt á þessu sviði.
Háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) talaði nokkur orð, og var það hið eina, sem af rökum hefir verið mælt gegn frv. Vel getur svo farið í mannmörgum bæ, að einhverjar skorður þurfi að setja, svo að eigi fari eins og hann spáði, við afnám skólaskyldunnar. Þó vil jeg gera meira en hv. þm. (J. Þ.) gerði úr því, sem þrír prestar hjer í Reykjavík geta gert. Þeir geta notað heimild þá, sem í frv. er, til þess að taka vanrækt börn af heimilunum og koma þeim þá í skólann.
Hins vegar tel jeg sjálfsagt, að nefndin muni fallast á þær endurbætur á frv., sem kæmu í veg fyrir þessa hættu. Annars talaði þessi háttv. þm. (J. Þ.) mjög rólega; hann sagði að vísu eina fyndni, en henni nenni jeg ekki að svara.
Eitt atriði kom fram í ræðu þessa hv. þm. (J. Þ.), sem jeg get að mörgu leyti verið honum samdóma um. Hann kvað ekki í frv. vera að ræða um sparnað á þjóðarfje, því sá kostnaður, sem ríkissjóður þyrfti ekki að svara samkvæmt frv., kæmi á bæjar- og sveitarfjelögin. Hjer væri því að eins um það að ræða að sækja fjeð til barnafræðslunnar í annan vasa. En á þessa skoðun hefir þingið ekki hingað til viljað fallast, t. d. hefir það endilega viljað láta sýslurnar sjálfar annast viðhald á sýsluvegum, og sýnist þó nær, að ríkissjóður bæri þann kostnað en kostnaðinn við barnafræðsluna, sem er miklu meira einstaklingsmál. Og úr því nú að þingið hefir tekið þessa stefnu upp, þá sje jeg ekki ástæðu til annars en að fylgja samnefndarmönnum mínum í því að gera mun á þessu tvennu, þótt í raun og veru standi þjóðarhagurinn jafnrjettur, úr hvorum vasanum sem tekið er.
Þá vil jeg víkja fáeinum orðum að því, sem hv. 1. þm. N.-M. (Þorst. J.) talaði yfir mjer. Hann sagði, meðal annars, að jeg hefði gengið af fundi undir ræðu hans, eins og vandi minn væri, er jeg hefði illan málstað. Jeg vildi nú helst kjósa að þurfa ekki að gefa þá sönnu skýringu á fjarveru minni hjer í heyranda hljóði, því jeg óttast, að það yrði ekki talið þinglegt. En ef hv. þm. (Þorst. J.) er mjög áfjáður að fá að vita þá sönnu ástæðu, þá er velkomið, að jeg segi honum það einslega.
Þá talaði hv. þm. (Þorst. J.) lengi um það flaustur, sem jeg kvað verið hafa í fræðslulöggjöf vorri, og vildi ósanna það mál mitt með því að breiða sig út yfir þann afarlanga undirbúning, sem það mál hafði fengið. En það er ekkert aðalatriði, hvað langur undirbúningurinn er, heldur í hverju hann er fólginn. Og í hverju hefir undirbúningurinn verið fólginn? Hann hefir verið fólginn í eintómum fyrirspurnum, og engu öðru. Og hverjir voru svo spurðir? Einmitt þeir menn, sem óhæfir voru taldir til þess að fræða börnin sjálfir. Og eftir þeirra umsögn er svo farið. Þetta er óneitanlega ágætur undirbúningur! Og það sæmir vel þessum hv. þm. (Þorst. J.) að tala digurbarkalega um hann.
Enn fremur gerði þessi sami hv. þm. (Þorst. J.) mjög lítið úr þekkingu minni á fræðslumálum. Jeg þykist ekki hafa hælt mjer af þeirri þekkingu umfram það, sem jeg get staðið við og fært rök að.
Jafnframt sagði þessi hv. barnakennari (Þorst. J.), með sinni venjulegu skarpskygni og rökvísi, að það væri jafnheimskulegt af mjer að ætla að kenna honum barnafræðslu eins og ef hann ætlaði að fara að kenna mjer grísku.
Þetta væri rjett, ef hann hefði fyrst sannað, að hann væri sjálfur eins vel að sjer í grísku eins og jeg er í þeim greinum, sem börnum eru kendar meðan þau eru innan fermingaraldurs. En ef hann getur ekki sannað það, þá hefði verið rjettara af honum að láta svona ástæður bíða.
Hann hjelt og langan fyrirlestur um heilsufar barna, og vildi helst halda því fram, að jeg hefði talið, að skólarnir spiltu heilsu barnanna. En öllum hv. þm. mun vera það vel kunnugt, nema þá þessum makalausa hv. þm. (Þorst. J.), að jeg sagði aldrei eitt einasta orð í þá átt. Jeg mintist á það, að hætta gæti af því stafað að hafa heimangönguskóla í sveitum, því það gæti svo farið, að börn yrðu úti á leið til skólans eða frá, ef snöggan byl gerði. En jeg mintist á siðferði barna og sagði, að börn lærðu oft margt misjafnt í skólum, og það stend jeg við. Jeg sagði það af því, að hv. þm. (Þorst. J.) var þá nýbúinn að hæla sjer af því að geta haft mikil áhrif á skapgerð barnanna. Jeg efast satt að segja um slík áhrif kennarans í skóla á skapgerð barnanna. Það er eins og kerlingin sagði: „10 toga að neðan en 12 að ofan, og þó sígur.“
Jeg hygg, að einn götustrákur geti haft og hafi meiri áhrif á skólabræður sína en 10 kennarar, og það jafnvel slíkir kennarar sem hv. 1. þm. N.-M. (Þorst. J.).
Jeg hefi þá svarað lauslega því, sem einkum hefir verið fundið þessu máli til foráttu. Jeg hefi tekið það fram, að þó að nefndin hafi ekki borið fram frv. sjerstaklega af sparnaðarástæðum, þá muni þó sparast mikið fje. Jeg hefi einnig sýnt fram á, að það er gersamlega ástæðulaust að segja, að nefndin vilji minka barnafræðsluna; hún vill þvert á móti auka hana og koma henni í betra horf. Ef heimili getur ekki kent barni, þá verður það tekið af því heimili, og ef heimilið getur þá ekki borgað með barninu, gerir hreppurinn það.
Að lokum mintist hv. þm. (Þorst. J.) á fyndni um barnaútburð, í sambandi við frv. þetta, sem hann hefir heyrt úti í bæ. Byggist hún á því, að ekki er sagt í frv., hvert fara skuli með börnin, er þau eru tekin af heimilunum. Og af því dregur svo hv. þm. (Þorst. J.) þá ályktun, að þá hljóti að eiga að bera þau út. En þessa margtugðu fyndni hefði hann fremur átt að geyma. Eða hefir hann ekki enn lesið frv.? Í 4. gr. frv. stendur svo:
„Nú getur maður eigi goldið kostnaðinn, er barn er tekið af heimili hans til kenslu, og skal þá dvalarhreppur greiða kostnaðinn,“ o. s. frv.
Kostnaðinn við hvað? Eða á þá að kenna útburðinum? Hvernig stendur það í barnafræðsluheilanum? Annars hlýtur hver meðalgreindur maður að sjá, að ekki er gott að ákveða vissa bæi í frv. sem þessu. En líklega munu prestarnir oft taka börnin á heimili sín undir slíkum kringumstæðum.
Að svo mæltu vil jeg afhenda háttv. deild þetta frv. Hún má bera það út, ef hún vill, en þá verða hv. þm. líka að taka á herðar sjer þann sóma, er slíku verki fylgir.