10.03.1922
Neðri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (1167)

45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra

Jón Þorláksson:

Mjer þykir leiðinlegt, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) skuli ekki vilja fella þetta óviðkomandi atriði úr dagskrá sinni, en verð þó auðvitað að sætta mig við það.

Hv. 2. þm. Húnv. (Þór. J.) hefir nú gert grein fyrir sínu máli, og jeg verð að segja það, að jeg hygg, að umr. um þetta mál hefðu snúist nokkuð á annan veg, ef þessi hin síðari framsaga hefði verið hin fyrri. Mjer virtist ræða hv. 2. þm. Húnv. (Þór. J.) bera vott um það, að hjer væri aðallega um það að ræða, að fjvn. hefði þótt ríkissjóður taka of mikinn þátt í kenslukaupi kaupstaða og kauptúna, samanborið við sveitahjeruðin. Það má vel vera, að svo sje, en þetta hefði þá mátt taka upp sjerstaklega og ræða um í bróðerni, án þess að sópa burt allri barnafræðslulöggjöf þessa lands. Það, hvort kaupstaðirnir fái meira af styrknum og sveitahjeruðin minna, er algerlega óviðkomandi grundvelli fræðslulöggjafarinnar. Þessi hv. þm. (Þór. J.) lýsti því yfir, að þetta væri að eins frestun um 1–2 ár. En um þetta er það segja, að flm. frv. ráða engu um það, hversu langur frestur þetta verður, úr því að ekki er á það minst í frv. Það getur því eins orðið frestun um 10–20 ár eins og 1–2. Hefðu þeir viljað hafa einhvern ákveðinn tíma, þá átti að setja slíkt inn í frv. — Jeg skal ekki fara út í það að ræða um það, hversu sanngjarnt er, að ríkissjóður taki eins mikinn þátt í barnafræðslu í kaupstöðunum og hann gerir nú, samanborið við sveitirnar. Til þess að hægt væri að gera sjer grein fyrir því, þyrfti að leggja fram tölur, er sýndu mismuninn, en það hefir ekki verið gert. Sami hv. þm. (Þór. J.) sagði, að það væri hægt að halda í sama horfinu í kaupstöðunum, meðan á frestuninni stæði. En svo er ekki. Það eru að vísu mörg heimili, sem jafnt mundu senda börn sín í skóla eftir sem áður, en ekki öll. Þeir, sem erfiðastar heimilisástæður hafa, mundu heldur halda sjer til baka, þar sem þeim ber engin skylda til að senda börnin í skólana, og skólunum heldur ekki skylt að taka við börnunum. Jeg skil ekkert í því, hvers vegna þeir menn, sem ætlast til, að ástandið verði óbreytt í kaupstöðunum, vilja endilega kippa burt öllum þeim lagagrundvelli, sem vilji þeirra byggist á.

Sami hv. þm. (Þór. J.) talaði einnig um, að rannsaka þyrfti, hvort barnafræðslunni yrði ekki betur fyrir komið. En þetta hefir verið gert. Það hefir verið lagt hjer fyrir þessa hv. deild stjórnarfrv. þessa efnis, og deildin hefir vísað því til mentmn. Þetta frv. þurfti því ekki að koma fram af þessari ástæðu. Mjer hefði fundist það best að láta þetta mál bíða þangað til mentmn. skilar nál. sínu um það mál.