10.03.1922
Neðri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (1168)
45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra
Þórarinn Jónsson:
Út af því, sem hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) gat um, að fresturinn geti orðið 10–20 ár eins og 1–2, sem jeg sagði að hann mundi verða, þá má vera, að það sje rjett hjá honum, að rjettara hefði verið að taka það fram í frv., og mun nefndin gera brtt. um það. Ekki skil jeg í því, að ekki sje hægt að halda uppi barnafræðslu í kaupstöðum, þó að þetta frv. nái fram að ganga, og ber slíkt ekki vitni þess, að hið gamla fyrirkomulag sje búið að ná slíkri festu, sem látið er. Það virðist ekki þurfa annað en samkomulag um það, eða að borgarafundur samþykki að halda kenslunni uppi; en þyki ekki hlýða annað en lögbinda þetta, er hægurinn hjá að láta fræðslulögin gilda fyrir bæi og kauptún, að því er skólaskyldu snertir.
Þar sem jeg talaði um rannsókn á máli þessu, þá átti jeg ekki við þá rannsókn, sem fram hefir farið hjer á þinginu nú, heldur átti jeg við rannsókn hjá þjóðinni og álit hennar að henni lokinni.