23.03.1922
Neðri deild: 30. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (117)

1. mál, fjárlög 1923

Jón Sigurðsson:

Við eigum hjer þrír 2 brtt. á þskj. 122. Jeg býst við, að það þyki hlýða að fylgja þeim með fáum orðum úr garði. Jeg bjóst við, að háttv. frsm. (B.J.) mundi minnast eitthvað á þær, svo jeg þyrfti ekki annað en svara honum. En hann hefir ekkert á þær minst, og verð jeg því að minnast nokkuð ítarlegar á þær.

Í fyrri liðnum er farið fram á það, að aukakennaraembættið við háskólann í samanburðarmálfræði og gotnesku verði lagt niður. Þetta embætti er nú gamall kunningi hjer. Það var mikið um það þráttað á síðasta þingi og margar tilraunir gerðar til þess að gera það að föstu embætti, en þær tilraunir mishepnuðust. Því hefir verið haldið fram, að sjerstakur kennarastóll í þessum fræðum væri ómissandi. Engu að síður er það þó flestum kunnugt, að frá því að háskólinn tók til starfa haustið 1911 og til ársins 1916 kendi prófessor Björn Ólsen einn þær fræðigreinar, er eftirmaður hans og Alexander kenna nú, og heyrðust þá engar kvartanir um, að þörf væri á sjerstökum kennara. En svo kom þessi maður til sögunnar og sækir, að mig minnir 1915, um styrk til þingsins til þess að kenna þýsk fræði við háskólann, og þá fyrst varð þörf fyrir þetta embætti. Íslenskukenslan við háskólann hefir nú staðið í 10 ár og enn hefir enginn maður útskrifast í þeim fræðum hjer, og bendir það óneitanlega til þess, að þetta starf sje ekki eins nauðsynlegt og af er látið. Því var haldið fram hjer í fyrra að við ættum að stefna að því að gera háskólann svo úr garði á þessu sviði, að erlendir menn sæktu hingað til að nema íslensk fræði. En þetta hefir ekki tekist. Til þess að það gæti orðið, þyrfti að bæta við, að sögn fróðra manna, 1 prófessor og 2 dósentum, en á því mun verða bið. Menn munu því fara hjeðan út til að nema þessi fræði, hvort sem Alexander heldur starfinu áfram eða ekki. Jeg fjölyrði svo ekki um þennan lið meira. Jeg skal þó geta þess, að þótt hjer sje ekki um neina stórupphæð að ræða, eitthvað á 7. þúsund kr.. er hún þó þess verð, að hún sje spöruð, en starfið er heldur ekki mikið, sem niður fellur, eitthvað 4 stundir vikulega og engir fyrirlestrar. Minni hluti nefndarinnar álítur því að þessi liður megi falla niður.

Þá kem jeg að hinum liðnum. Þar er farið fram á, að styrkurinn til skálda og listamanna sje færður niður í 10000 krónur. Þessi liður er í stj.frv. 21200 kr., að með talinni nafnbundinni veitingu til Bjarna Jónssonar. Meiri hluti nefndarinnar hefir lagt til, að þetta yrði fært niður í 15200 kr., þar af 10000 til skálda og listamanna og auk þess tvær nafnbundnar veitingar, til Bjarna Jónssonar og Svbj. Sveinbjörnssonar. Þetta teljum við hæfilegt eftir atvikum. Þegar við leggjum til, að styrkurinn til skálda og listamanna sje lækkaður, er það ekki af því, að við viðurkennum ekki það andlega verðmæti, sem þessir menn geta framleitt, heldur af því, að við teljum ekki æskilegt fyrir okkar litla þjóðfjelag að jafnmikið kapp verði framvegis lagt á að framleiða jafntorfengna vöru og sönn skáld og listamenn eins og gert hefir verið að undanförnu. Sannir listamenn eru torfengin vara, og það svo, að hjá stórþjóðunum kemur kannske ekki nema 1 maður slíkur á hálfri öld. Til þess að geta haldið lífi í fjölda listamanna þarf þjóðin að vera auðug, svo hún geti keypt af þeim listaverkin, en það erum við því miður ekki. Samt sem áður hafa síðustu þing, beint eða óbeint, ýtt stórum hóp manna út á listamannabrautina, þótt flestir viðurkenni, að okkur vantar öll skilyrði til þess að geta framfleytt þeim. Síðastliðið ár fengu 27 menn styrk, að ótöldum Einari Jónssyni. Það er eins og nefndin hafi verið að stritast við að styrkja flesta hagyrðinga þessa lands og alla, sem geta strokið lit á ljereft. Jeg verð að segja það að það er þung ábyrgð, sem hvílir bæði á einstökum mönnum og undanfarandi þingum, að hafa tælt unga og efnilega menn með skjalli og fyrirheiti um fjárstyrk, frá framleiðslu eða nauðsynjastörfum út á listamannabrautina, og endirinn verður því miður of oft sá, að þeir framleiða hvorki andlegt verðmæti nje annað.

Við leggjum því til, og leggjum áherslu á, að horfið verði frá þeirri stefnu, sem verið hefir uppi undanfarandi, að styrkja allan þennan sæg af mönnum. Við leggjum til, að veittur sje styrkur aðeins viðurkendum afburðamönnum og að ferða- eða námsstyrkur verði ekki veittur nema einum manni í hverri grein.

Ef þessi stefna yrði upp tekin, þá er vandalaust að sýna fram á það, að upphæð sú, er okkar brtt. nefnir, er fullnægjandi. Það þekkist ekki í neinu landi, að veittur sje styrkur hverjum þeim manni sem „fúskar“ við eitthvað af öllu þessu er hann heldur að sje list. Og ættu t. d. frændur okkar Danir að styrkja alla þá menn, er hjá þeim fást við samskonar og í líku hlutfalli, þá myndi sú upphæð skifta miljónum króna.

Jeg legg áherslu á, að úrvalsmennirnir komi til greina og að þeim verði launað svo um muni, en hætt við að skifta þessu fje milli allra handa Pjetra og Pála, sem lítið hafa annað til brunns að bera en vitlausar hugmyndir um sjálfa sig, og þá mun það koma í ljós, að þessi upphæð er nægileg.

Að vísu mætti um þetta segja fleira, en bæði er það, að jeg vildi takmarka mig sem mest, og svo ætla jeg að minnast fátt eitt á sumt af því, sem fram hefir komið í umr. Þess vegna læt jeg nú staðar numið um þennan svo nefnda listamannastyrk.

Mjer finst, eftir því sem lengra líður á umr., að sannast hafi á hv. frsm. (B.J.) það fornkveðna, að örðugt sje tveimur herrum að þjóna. Honum hefir líka farið svo, að hann hefir fremur kosið að halda á lofti sínum skoðunum og þeirra manna, er honum fylgja að málum, en sneitt hjá ágreiningsatriðum þeim, sem orðið hafa innan nefndarinnar.

Þó ætla jeg ekki að rekja að sinni öll þau ágreiningsatriði, sem myndað hafa meiri og minni hluta, en minnast aðallega á tvö atriði, og þykist jeg þá tala fyrir munn okkar þriggja með því, sem jeg nú segi.

Um ljósmyndun skjala í erlendum söfnum er það að segja, að jeg mun greiða atkvæði á móti þeim lið, bæði vegna þess, eins og bent hefir verið á, að upphæð þessi er svo lítil, að hún getur ekki komið að neinu gagni, og svo finst mjer, að þetta geti beðið um stund, og það að skaðlausu.

Ennfremur mun jeg greiða atkvæði móti hækkuninni til dr. Helga Jónssonar. Jeg álít að það fje, sem stjfrv. nefnir, sje nægilegt, enda er það í samræmi við styrk sem ætlaður er öðrum mönnum til rannsókna og líkt stendur á fyrir, sem sje Guðmundi Bárðarsyni og Bjarna Sæmundssyni.

Hæstv. atvrh. (Kl.J.) mintist á verslunarskólana og sagði, að nefndin legði til, að þeir væru lagðir niður á meðan verið væri að undirbúa einn allsherjar ríkisverslunarskóla. Þessi ummæli munu byggjast á því, að háttv. frsm. (B.J.) hjelt þar fram sinni skoðun á þessu máli, en ekki okkar minnihlutamanna. Fyrir okkur vakir ekki það, að stofnaður verði ríkisverslunarskóli á næstu árum. Miklu fremur er það hitt, eða svo er að minsta kosti fyrir mjer, að nú sje nógum lærðum, starfshæfum verslunarmönnum á að skipa eftir verslunarmagni okkar, hvort sem heldur er að ræða um stöður hjá kaupmönnum eða kaupfjelögum.

En um hitt, sem hæstv. atvrh. (Kl.J.) sagði að eins mætti leggja niður kennaraskólann eða stýrimannaskólann, þá vil jeg benda honum á það, að báðir þessir skólar eru kostaðir af ríkinu, og yrði því að greiða föstum kennurum þeirra laun eftir sem áður.