23.03.1922
Neðri deild: 30. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í B-deild Alþingistíðinda. (119)

1. mál, fjárlög 1923

Magnús Jónsson:

Jeg á tvær brtt. á þskj. 131, og skal jeg ekki eyða miklum tíma í að gera grein fyrir þeim.

Önnur þessi brtt. er við 14. gr. A. b. 2. um að styrkur, sem settur var í fyrra 10000 krónur til fátækra presta og prestsekkna fái að halda sjer óbreyttur. En í stj.frv. hefir hann verið lækkaður niður í 8000 kr. og háttv. fjvn. ekkert við því hróflað.

Í fyrra flutti jeg hjer í deildinni frv. þess efnis, að uppgjafaprestum yrði borguð eftirlaun eftir sömu reglum og öðrum. Þetta mætti nokkurri mótspyrnu, þó að undarlegt megi virðast því að hjer var þó ekki farið fram á annað en að uppgjafaprestar fengju eftirlaun, sem stæðu í sama hlutfalli við þeirra lágu laun eins og annara við þeirra hærri. Frv. þetta strandaði hjer í þessari háttv. deild, en í staðinn fyrir það var styrkurinn settur ríflegri. Þegar jeg svo sá í fjárlagafrv., að stjórnin hafði lækkað þennan styrk, var mjer það með öllu óskiljanlegt. Jeg leitaði í ástæðum stjórnarinnar og þóttist þar sjá, að þetta væri gert í sambandi við lækkun dýrtíðaruppbótarinnar. Þetta eru ekki stórar upphæðir að lifa af, og verða þau því heldur ódýr rökin stjórnarinnar. Finst mjer fremur að nærri stappi brigðmælum, ef skera á nú þennan lítilfjörlega styrk við neglur sjer. Þetta er aðeins ofurlítil viðleitni í þá átt, að láta ekki þessa menn fara á mis við alt. Vona jeg því, að háttv. deild láti styrkinn halda sjer eins og hún gekk frá honum í fyrra.

Annars er mjer ekki kunnugt um, hvernig háttv. fjvn. tekur í þetta, enda sakna jeg þess, að háttv. frsm. (B.J.) mintist ekkert á brtt. einstakra þm. En þó get jeg ekki við ráðið að mjer finst illur grunur læðast inn í huga mjer þegar jeg lít á brtt. nefndarinnar á annari grein síðar, þar sem skera á af fátækustu mönnunum hálfa dýrtíðaruppbót; það er þeim mönnum, sem hafa um 100 kr. laun og þar um.

Inn í hina brtt. mína hefir slæðst prentvilla og tek jeg hana því aftur til 3. umr. Annars sje jeg ekkert á móti því að geyma hana, þangað til uppvíst er hver upphæðin af þrem, 20. 15 eða 10 þús. sem ætlað er til listamanna, nái fram að ganga. En verði styrkur þessi lækkaður úr 27 þús. kr. niður í 10 þús. kr., þá verður eflaust „þröng fyrir durum“ þegar þeim styrk verður úthlutað.

Annars líkaði mjer illa að heyra til hv. 2. þm. Skagf. (J.S.). Hann sagði, að fátækar þjóðir eins og við mættum ekki eiga listamenn og hann fór óvirðingarorðum um þá unga menn, sem „flónskuðust út í það“ að þjóna köllun sinni. Eftir hans kenningu er þá ekki annað að gera ef margir listamenn vekjast upp en að skera af fóðrunum. Og honum finst ófært eins og úthlutunarnefndin hefir farið að, að skifta um styrk á milli sem flestra.

En jeg efast nú um, þó að háttv. 2. þm. Skagf. (J.S.) væri allur af vilja gerður að hann gæti dæmt um, hver væri „fúskari“, sem „stryki lit á ljereft“. Það hefir allajafnan reynst erfitt að sjá í upphafi, hvað í mönnum býr. Því væri vafalaust hollara að gefa sem flestum tækifæri að reyna sig; að minsta kosti getur það ekki orðið „afburðamanninum“ til tjóns sem þm. bar svo mjög fyrir brjósti.

Annars er það fjöldamargt, sem jeg vildi gera aths. við. En jeg vil ganga á undan með góðu eftirdæmi og spara þingkostnaðinn. Þess vegna læt jeg hjer staðar numið og fel háttv. deild þessa einu brtt. mína.