23.03.1922
Neðri deild: 30. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (120)

1. mál, fjárlög 1923

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Jeg vil minna háttv. 2. þm. Skagf. (J.S.) á, að þó honum líki ekki, hversu jeg þjóna tveim herrum, þá eru ummæli hans í þá átt nokkuð orðum aukin. Þegar jeg lýsti yfir því. hverjum brtt. fjvn. jeg gæti ekki greitt atkvæði með, þá var slíkt ekki hluti af minni framsögu, heldur greip jeg þar tækifærið um leið til að gera grein fyrir mínu sjeratkvæði, og hugði mig með því spara mjer sjerstaka ræðu, enda mun jeg ávalt hafa tekið ljóst fram hvað jeg sagði frá eigin brjósti og hvað jeg mælti í umboði nefndarinnar.

Þá vil jeg í fám orðum lýsa undirtektum nefndarinnar undir brtt. á þskj. 131. Um III. lið er það að segja, að nefndin er á móti þeirri hækkun, og sömuleiðis móti hækkun á IV. lið. (M.J.: Sá liður er tekinn aftur). Jæja, þá þarf ekki frekar um hann að ræða.

Þá átti jeg að skila til háttv. 1. þm. S.-M. (Sv.Ó.), að nefndin væri mótfallin brtt. hans við 15. gr. 19 b. Frá eigin brjósti skal jeg ekkert um þá till. ræða, af því jeg er við málið riðinn. Vil jeg aðeins láta í ljós meðaumkun mína með veslings Goethe, að hann skyldi fara að yrkja út af ómerkilegri þýskri þjóðsögu og takast það jafnilla og þessi háttv. þm. segir.

Um hina brtt. þessa háttv. þm. (Sv.Ó.) við 15. gr. 20. lið hefir nefndin áskilið sjer óbundin atkvæði. En þó jeg hafi lofað að halda ekki langar ræður viðvíkjandi mentamálunum að þessu sinni, þá verð jeg þó að fara fáeinum orðum um þennan lið. Orðabókin var upphaflega bitlingur til eins manns, og honum fylgdu þau skilyrði, sem engum dauðlegum manni var fært að uppfylla, en það var að hafa vissa arkatölu tilbúna á ári. Þessu fjekk jeg breytt síðar, og í það horf, að semja skyldi vísindalega íslenska orðabók. Slíkt verk er sómi hverri þjóð, enda hafa bestu vísindamenn meðal annara þjóða verið valdir til þess starfa. Þegar þessi breyting komst á, þá voru ráðnir tveir ágætir menn til þess að framkvæma verkið, þeir dr. Björn heitinn frá Viðfirði og síra Jóhannes L. L. Jóhannsson. Auk þess fjekk og ungur efnismaður fljótt að fljóta með, Þórbergur Þórðarson. Úr því nú að Alþingi hafði ráðist í þetta ágæta fyrirtæki, þá var ekki nema sjálfsögð von, að það ljeti verða framhald á því verki. En því er ekki að heilsa Alþingi hefir þar horfið frá góðum málstað og látið einn mann vinna að verkinu, eftir að Jakob Smári var tekinn frá starfinu og gerður að kennara við mentaskólann. Síðan hefir Jóhannes haft starfið einn á hendi. en það er honum algerlega ofverk. Þó er verk hans gott og verður til nota, þegar menn aftur ranka við sjer og taka upp að nýju þetta þarflega verk með fullum krafti.

Þegar þessi maður (Jóh.Jóh.) var ráðinn til orðabókarstarfsins, fór hann úr ágætu embætti, og það örstuttu áður en kjör presta voru bætt, þannig að ef hann hefði fengið að sitja lengur í embættinu, þá hefði hann verið miklu betur settur en nú, með þeirri fjárveitingu, sem hann hefir. Jeg fæ því ekki betur sjeð en að það hljóti að vera spaug hjá háttv. 1. þm. S.-M. (Sv.Ó.), þegar hann leggur það til, að þessum manni verði veittar einar 3500 krónur, því jeg get varla trúað því, að jafnroskinn þm. viti ekki, hvað hann er að gera. Verri hvatir vil jeg ekki gera honum í þessu máli.

En jeg treysti því og veit það að háttv. þm. telji þar við liggja sóma þingsins, að ekki sje níðst á þessum manni, og muni því hiklaust drepa þessa till.

Um b-lið brtt. hefir nefndin óbundin atkv.

Þetta læt jeg þá nægja um brtt. einstakra þm. En hjer liggja einnig fyrir á þskj. 122 brtt. frá þrem háttv. þm., og þarf jeg að drepa á þær nokkrum orðum. Þessir háttv. þm. fara fram á það, að laun dr. Alexanders Jóhannessonar sjeu feld niður. Ástæðuna telja þeir vera þá, að þessi kennari sje óþarfur. En ef þessir háttv. þm. hefðu látið svo lítið að spyrja um álit háskólans á þessu máli, þá hefðu þeir vafalaust fengið það svar, að þessi maður væri ekki óþarfur, heldur nauðsynlegur. Og jeg verð að halda fast við það, að kennarar háskólans munu hafa meiri þekkingu og vit á þessum málum en þessir 3 háttv. þm., sem brtt. flytja.

Alexander kennir nú íslenska samanburðarmálfræði við háskólann. Mun enginn háskóli í víðri veröld, að ekki hafi hann kennarastól í samanburðarmálfræði.

Er ekki líklegt, að háskóli Íslands vilji vera eftirbátur í þessari grein, því allir hafa hugsað sjer, að einmitt í fornnorrænum fræðum ætti hann að geta haft forgöngu og staðið öðrum háskólum framar, vegna þess hve góða aðstöðu hann hefir. Það hefir og sýnt sig, að við erlenda háskóla hefir ekki verið unnið mikið í þessari fræðigrein án þess að þar hafi notið við Íslendinga. Má þar sem dæmi nefna Hafnarháskóla; þar hefir mestalt í þessum fræðum verið unnið með aðstoð íslenskra manna, og þektasti vísindamaðurinn í þeirri grein þar er Íslendingur. Íslendingar eru stórvirkir menn þegar þeir leggja sig fram, og því ætti háskóli vor ekki að þurfa að vera eftirbátur á því sviði, þar sem við höfum sjálfir ætlað honum forgönguna.

Alexander Jóhannesson hefir nú nýlega gefið út fornnorræna málfræði, mikið verk og gott. Þarf ekki þar um eingöngu að njóta umsagnar og dóms íslenskra manna. heldur og erlendra, og það jafnvel Þjóðverja, sem taldir eru manna lærðastir í þessari grein. Alexander er og manna áhugasamastur og starfsamastur og vel fallinn til þess að verða vísindamaður á þessu sviði, því þangað hnígur öll þrá hans og áhugi.

Háttv. 2. þm. Skagf. (J.S.) taldi vera hægt að komast af án þessa manns. Það er auðvitað hægt að segja að einn kennari geti tekið að sjer að kenna alt það í íslenskum fræðum, sem heimtað er til meistaraprófs. En það er heldur ekki meira en hægt að segja það. Og það er ekki til neins að segja það. Slíkur afburða- og afkastamaður er ekki til. Það er hægt að skifta æfi sinni þannig, að fást fyrstu 10 árin við þessa fræðigrein, næstu 10 árin við aðra, þriðju 10 árin við enn aðra o. s. frv. En að segja einhverjum að taka allar þessar fræðigreinar í einu og kenna þær það er fjarstæða. Það getur enginn dauðlegur maður. Þessir háttv. þm. gera sig því aðeins hlægilega með því að koma fram með svona till. Þeir hefðu átt að láta svo lítið að spyrja háskólann um málið áður; þá hefðu þeir fengið rjett svar.

Enn þarf hjer að athuga eitt atriði, og það er það, að ef þessi maður er sviftur þessu fje, þá er beinlínis rofið heit við hann. Hann gat ekki haldið áfram kenslunni við háskólann, nema hann fengi uppbót á laun sín, þannig að hann hefði sömu laun og dósentar. Þessu sagði hann stjórninni frá. Stjórnin svaraði því, að ef hann vildi afsala sjer starfi því, sem hann hafði hjer fyrir þýska ríkið, þá skyldi hann fá launahækkunina. Síðan talaði stjórnin við fjvn. Báðar fjvn. komu á sameiginlegan fund og samþyktu þar launahækkunina. Þess vegna þykir mjer því víkja allundarlega við, ef Alþingi vill nú leggja niður starf þessa manns og reka hann frá, eftir að hann hefir sjálfur lagt í sölurnar 6 þúsund króna embætti, til þess að geta haldið starfi sínu áfram við háskólann.

Jeg get naumast hugsað mjer, að mönnum sje hjer svo mikið áhugamál að vængstýfa þennan háskóla, að þeir vilji vinna það til að halda illa orð við menn. Auðvitað má segja, að atkv. þingmanna hafi ekki gengið um þetta beinlínis, en það er þó í síðustu fjárlögum.

Þá kem jeg að brtt. þessara þriggja fjvn.-manna, þar sem þeir fara fram á enn frekari lækkun á styrknum til skálda og listamanna. Meiri hluti nefndarinnar taldi ekki óaðgengilegt að lækka þennan styrk niður í 15 þúsund kr., úr því að ákveðinn var sjerstaklega styrkur til söngskáldsins Sveinbjörns Sveinbjörnssonar. En að lækka þann styrk enn frekar, eða niður í 10 þús. krónur, tel jeg algerlega ófært. Ýmsir menn hafa þegar notið þessa styrks í mörg ár t. d. Einar Hjörleifsson, Guðmundur Friðjónsson o. fl. Þessum mönnum er ekki gott að bægja frá, enda naumast sæmilegt, þar sem þeir munu hafa gert sjer öruggar vonir um styrkinn. En þar sem nú margar fjárveitingar af þessum litla styrk mega þegar heita fyrirfram ákveðnar, þá fer að verða lítið eftir handa ungum efnilegum listamönnum, sem þó getur verið nauðsyn að hjálpa. Annars ætti það að verða framtíðarregla að veita ekki jafnmörgum skáldum styrk og áður hefir tíðkast. En því má ekki kippa í lag með harðýðgi og í einu vetfangi heldur smátt og smátt. Ríkið er þó móðir mannanna, og þegar það hossar einhverjum hátt um stund, þá má það ekki gera það eins og grísku guðirnir í þeim tilgangi að fella þá því dýpra.

Viðvíkjandi styrknum til listamanna, þá er þess að gæta, að enginn er svo vitur, að geta fyrirfram sagt. hvort rjettara, sje að veita A., B. eða C. hann; því að eigi er auðið að vita fyrirfram, hver þeirra verður afburðamaður. Það verður því altaf að veita hann fleirum en einum og miða við það, að allir verði sæmilega nýtir menn. Því það er eins fyrir þjóðunum eins og náttúrunni, að þær þurfa að hafa úr mörgum að velja, til þess að geta framleitt einn afburðaeinstakling. Jeg vil nú eindregið leggja til, að 3. liður á þskj. 122 verði feldur, því að þetta er sannarlega misskilinn sparnaður og þjóðin hugsar ekki svona. Því jeg er viss um, að bændurnir úti um landið myndu veita þennan styrk, ef þeir ættu um þetta mál að fjalla. Það þýðir ekki að brosa. Jeg þekki bændurna eins vel og þessi háttv. þm., sem brosir, og jeg er viss um, að þeir gerðu þetta.