31.03.1922
Neðri deild: 37. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (1211)

45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra

Forsætisráðherra (S. E.):

Jeg hefi talað svo oft um þetta mál, að jeg skal láta mjer nægja örstutta athugasemd viðvíkjandi brtt. á þskj. 168. Jeg hefi átt tal við fræðslumálastjóra og bað hann um álit hans um, hvort kennarar mundu geta komist af með laun þau, sem gert er ráð fyrir í brtt., og hvort nægir kennarar mundu fást í stöðurnar með þeim launum. Ljet hann það álit í ljós, að að eins þeir, sem einskis annars ættu úrkosta, mundu sætta sig við þessi kjör, en úrvalsmennirnir mundu snúa sjer að öðrum verkefnum. Taldi hann því, að fræðslumálunum mundi stafa stórhætta af því, ef till. yrði samþ. Mjer þótti sjálfsagt, að hv. deild gæfist kostur á að heyra álit þess manns, er kunnugastur er fræðslumálum landsins.