31.03.1922
Neðri deild: 37. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í C-deild Alþingistíðinda. (1214)

45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra

Pjetur Ottesen:

Við könnumst allir við það, sem kallað er að grípa dauðataki á einhverju. Einkum er þess getið um þá menn, sem eru að drukna, að nái þeir handfesti á einhverju í andarslitrunum, þá sje örðugt að losa um slík tök.

Eins finst mjer að farið hafi fyrir hæstv. forsrh. (S. E.). Hann hefir gripið dauðahaldi í ummæli þau, sem fylgdu frv. fjárveitingan. í öndverðu og bitið sig fastan í greinargerðina.

Hann hjelt því seinast fram í gær, að af þeirri greinargerð mætti ekki annað ráða en verja ætti öllu því fje, sem sparaðist í barnafræðslunni, til unglingafræðslu í landinu, og með því yrði fjeð fest um óákveðinn tíma. En það er, að því er virðist, eitur í beinum kenslumálaráðherrans að heyra talað um að veita fje til kenslu eða menningar, þegar unglingarnir eru orðnir svo þroskaðir, að þeir geti fyllilega notið mentunarinnar. Hann álítur unglingafræðsluna einskis virði, í samanburði við þá barnafræðslu, sem nú tíðkast, en úr henni höfum við viljað bæta.

Þessi ummæli gat auðvitað enginn lesið eða þýtt út úr greinargerðinni á þennan veg, eins og hæstv. forsrh. (S. E.), nema þá að lesa þau eins og sagt er, að viss herra lesi biblíuna, og hjelt jeg að kenslumálaráðherra ríkisins myndi síst taka hann til fyrirmyndar.

Í greinargerð frv. fjvn., sem er fremur stutt, er þess getið, að nánara verði gerð grein fyrir þessu í framsögu málsins. Það kom líka skýrt fram þar, að þó að fjeð til unglingaskólanna yrði hækkað um helming og skólar í kauptúnum og kaupstöðum fengi ríflegan styrk, þá mundi þetta leiða af sjer um 200 þús. kr. sparnað á útgjöldum ríkissjóðs á árinu 1923. Hv. frsm. (B. J.) greip ekki dýpra í árinni en þetta, að hann nefndi að eins 200 þús. kr., en þegar nefndin gerði svo endanlegar till. um þennan lið við fjárlögin, kom það í ljós, að sparnaðurinn á útgjöldum ríkissjóðs varð um 250 þús. kr.

En hæstv. forsrh. (S. E.) vildi ekki spara þetta fje. Raunar vildi hann þó koma því yfir á kenslumálaráðherrann, en um það mætti nú kannske segja, að það sje skylt skeggið hökunni. Hann afsakaði sig líka þá — við 1. umr. þessa máls — með því, að hann væri ekki búinn að grafa sig ofan í fjárhaginn, en eftir framkomu hans síðan, þá er fjárhagurinn líklega svo góður í hans augum, að engin þörf er á sparnaði í þessu efni, og það er fleira í framkomu hæstv. forsrh. (S. E.), sem virðist benda til að svo sje.

Hann vildi heldur ekki nota starfskrafta prestanna, sem víða eru lítið notaðir nú. En prestarnir eru skyldir til þess að lögum að hafa eftirlit með barnafræðslunni. Þeir eiga að fara tvær húsvitjunarferðir á vetri um sóknir sínar og líta eftir og gefa ráð og leiðbeiningar um heimafræðsluna. En með því fræðslufyrirkomulagi, sem við höfum átt við að búa, hafa prestarnir lagt eftirlitið á hilluna og álitið, að skyldan hafi færst yfir á farkennarana eða skólana, og þetta hefir gengið svo langt, að þess eru dæmi, að prestar hafa lagt niður að húsvitja og taka manntal, og hefir það sumstaðar valdið erfiðleikum og orðið bagi að.

En þessa starfskrafta vill nefndin nota, enda á ríkið kröfur til þess. Prestarnir fá há laun og háværar raddir berast frá þjóðinni um það að nota vel það starf, sem fullborgað er. Þetta eftirlit með fræðslunni er og samstætt aðalstarfi prestanna og undirstöðu þess, en það er að vera meðalgöngumenn á milli guðs og manna.

Þegar prestarnir hættu að hafa náið samband við söfnuði sína, dofnaði trúarlífið svo, að nú má víða um það segja, að það sjeu að eins kulnaðar glæður.

Þess vegna finst mjer íhugunarvert, hvort ekki sje hægt að auka þetta samband og koma því í það horf, sem áður var, og mjer finst það næsta undarlegt, að sjálfur kenslumálaráðherrann skuli leggjast á móti því, að þetta sje reynt. Hans var þó fyrst og fremst skyldan að ganga á undan með góðu eftirdæmi.

Fyrir okkur vakir líka að bæta heimafræðsluna, því hún hefir jafnan verið sterkasti mentunar- og menningarþáttur þjóðfjelagsins, og þó að henni hafi hrakað um stund, þá er sú afsökun til þess, að fólkið hefir reitt sig á kennarana og skólana. En það mun heilladrýgst í framtíðinni, að á heimilunum sje sáð þeim, frækornum í barnssálirnar, sem bera eiga ávöxt fyrir lífið síðar meir. Og þegar það er alment viðurkent, að heimilin hafi áður haft heillavænleg áhrif með fræðslu sinni, og það játar hæstv. forsrh. (S. E.), þá er enn undarlegra að vantreysta þeim fremur nú og hamast með hnúum og hnefum á móti því að auka einmitt þessi heillavænlegu áhrif.

Hæstv. forsrh. (S. E.) hjelt því fram, að það væri argasti skrælingjaháttur að fresta fræðslunni um tvö ár. En hvar er þá öll þessi mentun, sem nýju skólarnir hafa skapað, ef öll fræðsla í landinu ætti að komast í kaldakol, þó að framkvæmd fræðslulaganna yrði frestað um 2 ára skeið? Ef það kæmi ekki fram á heimilunum, hvar gætir þess þá? Jeg þykist vita, að svarið verði, að þeir, sem fræðslunnar hafa notið, sjeu foknir út í veður og vind, og mun þetta satt vera. En þá komum við aftur að annari hlið þessa máls, sem sje þeirri, að skólarnir hafa komið losi á hugsunarhátt manna, svo þeir hafa leitað burt úr sveitunum, undir eins og þeir sáu sjer fært. Og sú hliðin er engu síður alvarleg en sumar aðrar. En til þess að tryggja fólkið í sveitunum, tel jeg víst, að heimafræðslan mundi heppilegust, samfara því að koma á fót og styrkja unglingaskóla í sveitum. Og sá, sem er elskur að heimili sínu og hugsar um hag þess, hann mun uppfylla fleiri skyldur við þjóðfjelagið.

Þá hefir og hæstv. forsrh. (S. E.) bitið sig fastan í það, að bæta þurfi á einhvern hátt þann halla, sem kennararnir bíða við frestun laganna. En ef ástandið er nú víða eins og hv. 1. þm. N.-M. (Þorst. J.) lýsti því í gær, þá held jeg, að ríkinu beri lítil skylda að sjá þeim kennurum farborða, er á engan hátt voru starfi sínu vaxnir. Að vísu mun hv. 1. þm. N.-M. (Þorst. J.) aðallega hafa átt við þá kennara, sem ekki höfðu lokið kennaraprófi, en ætli það hafi ekki getað líka náð til sumra kennaraskólamannanna? (Þorst. J.: Vitanlega eru undantekningar þar líka). En hv. þm. (Þorst. J.) er nú „dauður“ og jeg vil ekki leggjast á náinn, með því að hefja deilur við hann að nýju. Hann er vanur að mála með sterkum litum málstað sinn, og býst jeg við, að hann hafi ekki brugðið frá þeirri reglu í þessari lýsingu sinni. Við höfum líka áður átt orðastað um þetta, og læt jeg því úttalað um það nú.

Hæstv. forsrh. (S. E.) hefir lagst á móti þessu frv., af því að hann telur það sparnaðarfrv. Það er það, sem okkur skilur. Jeg hefi litið svo á, að full þörf væri að draga saman seglin hvað útgjöld ríkissjóðs snertir og reyna að spara sem allra mest. — Þó segja megi máske, að við fjárveitingan.menn höfum lagt misjafnlega mikla áherslu á ýms atriði þessa máls, þá vakti sparnaðurinn jafnframt fyrir öllum, og auk þess að hægt væri að miðla einhverju til unglingaskólanna, fram yfir það, sem nú er. Furðar mig því mikið, að hæstv. forsrh. (S. E.), enda þótt hann sje nú líka kenslumálaráðherra, því að skylt er þó skeggið hökunni, þar sem sama persónan er hvorttveggja, skyldi taka svona í málið, því að samkvæmt „prógram“-ræðu sinni, þeirri, er hann hjelt hjer á dögunum, sællar minningar, ljest hann þó vilja spara. Jú, það átti svo sem að spara. Gafst honum nú tækifæri, og þau hafa reyndar gefist fleiri, á því að sýna hug sinn í verkinu, en þá fór sem fór. Hefi jeg að gamni mínu talið saman um 300 þús. kr., sem hæstv. forsrh. (S. E.) hefir lagst á móti, að sparaðar yrðu af útgjöldum ríkissjóðs árið 1923. (S. E.: Hvað er það?). Jú, úr því hæstv. forsrh. (S. E.) langar til að jeg rifji það upp fyrir honum, þá er það velkomið, og skal jeg lesa hæstv. ráðherra (S. E.) það, honum til skemtunar.

Stærsti liðurinn er 250 þús. kr., sem fjvn. lagði til, að sparaðar yrðu með frestun fræðslulaganna. Þá er næsti liður 12 þús. kr. til sendiherrans. Mætti raunar reikna þessa upphæð hærri, því að sendiherrann hefir tjáð, að honum dygði ekki þessi upphæð til viðbótar, svo að búast má við, að hækka verði hana, sennilega um helming. Þá eru 9 þús. kr. til þess hagnýta. En jeg ætla að gera honum 2/3 í biðlaun, svo að það verða 3 þús. kr. Þá er grískudócentinn með 7200 kr. Var þar engin skylda til biðlauna, svo að reikna má þá upphæð alla. Þá er eftir prentun Alþt., sem nema mun lágt reiknað 20 þús. kr., laun dr. Alexanders Jóhannessonar 6300 kr., og loks eru skólagjöldin, sem mun mega áætla um 15 þús. kr. Verður þetta samtals um 314300 kr. Allar þessar upphæðir hefði hæglega mátt spara á útgjöldum ársins 1923.

Hv. 1. þm. Árn. (E. E.) fanst kenna glundroða í málinu, og vildi halda fram, að við flm. brtt. á þskj. 168 ættum þar hlut í. Það er ekki. Við komum með þessar brtt. þegar útsjeð var um, að frv. í sinni upprunalegu mynd mundi ná fram að ganga. Annars skal það viðurkent, að þessi hv. þm. (E. E.) hefir engan glundroða sýnt í málinu, því að hann hefir nú, samkvæmt ræðu hans áðan, algerlega kúvent í málinu og er nú þveröfugur orðinn við það, sem hann var í nefndinni.