13.03.1922
Neðri deild: 21. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í C-deild Alþingistíðinda. (1231)
46. mál, afnám kennaraembættis í hagnýtri sálarfræði
Frsm. (Sigurður Stefánsson):
Jeg tók það fram í fyrri ræðu minni, að sömu ástæður ættu við þetta frv. og hitt, sem síðast var rætt um; þess vegna mun jeg fylgja heilræði hv. þm. Dala. (B. J.), að eyða ekki dýrmætum tíma þingsins í langar umræður. Þó get jeg ekki hjá því komist að drepa á nokkur atriði í ræðu hv. þm. (B. J.).
Hann lýsti það ósannindi hjá mjer, að þessi maður (Guðm. F.) hefði litla aðsókn, en jeg hefi góð gögn til að ósanna orð hans sjálfs í því efni. Vil jeg þó síst bregða þessum manni um það, að hann ræki illa starf sitt, heldur mun hinu um að kenna, að lærisveinarnir sækja illa kensluna, og þjóðin skilur ekki það verklega gagn, sem af þessari kenslu mætti verða. Því stendur þessi maður nú sem kennari, en sem lærisveinalaus kennari. Þó ef til vill megi segja, að hjer sje ekki um stórfeldan sparnað að ræða, þá sýnist þó full ástæða fyrir þing og þjóð að gefa því gaum, hvort launa eigi menn í embættum, þar sem ekkert er að gera.
Annars var ræða hv. þm. Dala. (B. J.) að mestu leyti lof um sjálfan hann, og nenni jeg ekki að hryggja hann með því að gera athugasemdir við sjálfshól hans.
Jeg vil taka það fram, að hafi þingræður spilt fyrir lántökunni, eins og hv. þm. Dala. (B. J.) sagði, þá eru það ekki ræður þm. N.-Ísf. (S. St.). Hitt hefi jeg frá góðum heimildum, að það hafi einmitt verið ræður lánspostulans, hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) (Gunn. S.: Ástæður!). Jeg kæri mig ekki um að færa ástæður fyrir því nú.
Það er satt, að jeg vil spara, og ekki að eins peninga, heldur einnig lánstraust landsins. Og það þykist jeg gera best með því að andæfa lántökunum, því þá varðveitist lánstraustið sem er besti dýrgripur þjóðarinnar.
Að lokum vil jeg geta þess, án þess í nokkru að vilja kasta steini að þessum heiðursmanni, sem hjer er um að ræða, að stærsta sparnaðarfrv., sem fram hefir komið á þessu þingi, fer einmitt fram á það að fresta og breyta þeim lögum, sem beinlínis eru gerð eftir till. og forsögn þessa heiðursmanns, en það eru fræðslulögin.
Jeg vil geta þess, af því hv. þm. Dala. (B. J.) sagði, að nefndin mundi ekki vera sammála, að hún er fyllilega á einu máli um þetta frv.
Að svo mæltu skal jeg hlíta heilræði hv. þm. (B. J.) og setjast niður.