30.03.1922
Neðri deild: 36. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (1240)

46. mál, afnám kennaraembættis í hagnýtri sálarfræði

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Jeg hefi engu við það að bæta, sem jeg hefi sagt við fyrri umr. þessa máls. Vil jeg þó geta þess, að sparnaðarn. hefir alls ekki breytt skoðun sinni, þó hún hafi fengið í hendur álit háskólaráðsins um málið. Sjer hún ekki í því áliti færð nægileg rök fyrir þörf þessa embættis. Þessi ummæli læt jeg nægja um málið.