03.04.1922
Efri deild: 35. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í C-deild Alþingistíðinda. (1245)

46. mál, afnám kennaraembættis í hagnýtri sálarfræði

Sigurður Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að leggja til, að máli þessu verði vísað til nefndar, þrátt fyrir það, þó það sje komið frá nefnd. Jeg tel sem sje fulla þörf á því, að það verði vel athugað hjer í deildinni, og verður líklega rjettast að vísa því til fjhn.