03.04.1922
Efri deild: 35. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í C-deild Alþingistíðinda. (1254)

46. mál, afnám kennaraembættis í hagnýtri sálarfræði

Guðmundur Guðfinnsson:

Þar sem tvísýnt er, hvert nokkur sparnaður verður að frv. þessu, þó að fram gangi, en stjórnin hins vegar vill rannsaka þetta mál, ásamt öðrum, þá leyfi jeg mjer að koma með svo felda rökstudda dagskrá:

Með því að deildin lítur svo á, að því megi óhætt treysta, að landsstjórnin taki til nákvæmrar yfirvegunar alla embættaskipun landsins, og leggi fyrir næsta Alþingi ákveðnar tillögur um það, á hvern hátt megi gera hana einfaldari og þá um leið ódýrari, þykir henni ekki að þessu sinni ástæða til að taka neina ákvörðun hvað þetta embætti snertir, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.