03.04.1922
Efri deild: 35. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í C-deild Alþingistíðinda. (1255)

46. mál, afnám kennaraembættis í hagnýtri sálarfræði

Einar Árnason:

Jeg get sagt eins og hv. þm. Snæf. (H. St.), að jeg var á móti stofnun þessa embættis frá upphafi. Átti jeg þá sæti í Nd. og greiddi atkv. á móti því við allar umr. þar. Áleit jeg stofnun embættis þessa vanhugsaða og gagnslausa. Hefi jeg í engu skift um skoðun síðan, og mun því hafna dagskránni, en samþ. frv. Hefi jeg hjer engu lofað, og því engu að rifta.

En þar sem hjer er um mjög mikilhæfan mann að ræða, þá er eigi loku fyrir það skotið, að hann geti unnið mikið gagn á öðrum sviðum. Vænti jeg þess einmitt, að hann fái tækifæri til þess áður mjög langt líður. Er þá vel, að hann sje laus við þetta embætti, svo hann geti tekið við öðru starfi, sem gefur honum betra tækifæri til að nota hæfileika sína, þjóð og landi til gagns.