21.03.1922
Neðri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í C-deild Alþingistíðinda. (1270)

31. mál, kosning þingmanns fyrir Hafnarfjarðarkaupstað og skipting Gullbringu og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Magnús Jónsson:

Jeg sje það af ræðu hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), að við erum í raun rjettri sammála. En þess hefði jeg óskað, að hann hefði beitt áhrifum sínum í nefndinni, svo að þetta sæist í nál. Nefndin gat hæglega mælt með frv., en á móti brtt., en í stað þess hefir hún skorið þann rjettláta niður með hinum rangláta.

En þeirri fyrirspurn vil jeg beina til hæstv. forsrh. (S. E.), hvort nokkur líkindi muni vera til þess, að Hafnarfjörður fengi ekki þm., þegar endurskoðun kjördæmaskipunarinnar fer fram.