21.03.1922
Neðri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í C-deild Alþingistíðinda. (1273)
31. mál, kosning þingmanns fyrir Hafnarfjarðarkaupstað og skipting Gullbringu og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi
Björn Hallsson:
Hv. l. þm. Eyf. (St.St.) hneykslaðist mjög á því, að jeg skyldi minnast á það, að umræðuparturinn yrði lengri, ef þm. yrði fjölgað, en hins gætti hann eigi, að þetta var að eins aukaatriði fyrir mjer, en aðalatriðið var það, að jeg bjóst ekki við betri niðurstöðu í málunum við það, en kostnaðaraukinn auðsær.
Hv. 2. þm. Reykv. (J. B.) sagði, að viðfangsefnunum hefði fjölgað; þetta er rjett, en jeg held, að það sje ekki því að kenna, að þm. sjeu of fáir, þó að niðurstaðan sje stundum eigi svo æskileg sem skyldi. Hins vegar sýnir reynslan, að málæði er því meira, sem fleiri menn eru saman komnir, og meiri vandkvæði á góðri niðurstöðu.