03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í C-deild Alþingistíðinda. (1291)
40. mál, hæstiréttur
Forsætisráðherra (J. M.):
Hv. frsm. (P. O.) hefir að nokkru leyti tekið af mjer ómakið með því að benda á það, sem gæti verið athugavert í frv.
Hjer er um mjög alvarlegt mál að ræða, er um er að fjalla gerbreytingu á einum lið ríkisvaldsins, dómaskipuninni. Geri jeg ráð fyrir, að allshn. athugi það.
Jeg vil benda á það, að þegar um er að ræða svo miklar breytingar sem hjer, þurfa þær sjerstakan undirbúning og athugun.
Jeg veit, að bæði hv. flm. og prófessor sá, sem þeir ráðfærðu sig við, muni hafa athugað málið vel, en þó hygg jeg það þannig vaxið, að það beri að hlusta á till. fleiri manna, og einkum stofnananna sjálfra, er hjer eiga hlut að máli, hæstarjettar og háskóla, og að fyrst eigi að fá till. þeirra og álit um málið, áður en lengra er farið.
Það kann að vera, að hægt sje að breyta þessu án þess að skerða tryggingu fyrir góðum dómi, og það kann að vera, að þessi breyting komi ekki í bága við stjórnarskrána, en hitt tel jeg þó víst, að hún muni eigi vera samrýmanleg hugsun hennar, um að tryggja dómsvaldið og gera það sem óháðast.
Það er rjett hjá hv. flm. (P. O.), að það kom oftar en einu sinni fram á Alþingi áður fyr að láta yfirdómendurna kenna við lagaskóla, en þetta er þó eigi fullkomlega sambærilegt, því að yfirrjetturinn var að eins miðstig dóms, en hæstirjetturinn er efsti dómur og óriftanlegur. Þess ber og að gæta, að meðan verið var að reyna að stofna lagaskólann, í stríði við útlent vald, var þetta skoðað aðeins sem bráðabirgðaráðstöfun, sem dómararnir og margir þm. töldu óheppilega.
Það er alkunna, að þegar stjórnarskrárnefndin á sínum tíma ræddi um það að banna dómurum sæti á þingi, þá var það einmitt þetta, sem hún hafði í huga, að gera hinn æðsta innlenda dómstól óháðan, ekki einungis umboðsvaldinu, heldur að öllu leyti, og búa svo um, að hann veitti sem besta tryggingu fyrir þá, er dómum hans þyrftu að hlíta. Þá var þetta þó ekki nema miðdómstóll. Nú á að gera hæstarjett háðan umboðsvaldinu.
Að því er viðkemur háskólanum, er þetta tæplega leyfilegt án þess, að það sje fyrst borið undir prófessorana. Það hefir verið skilningur stjórnarinnar, að hann skyldi sem mest ráða gerðum sínum sjálfur eða hafa sem mest „autonomi“. Það virðist ætti að vera mönnum ljóst, að fyrst við höfum fengið háskóla, verðum við að kosta kapps um að gera hann eins veglegan og unt er, en þetta hlýtur að vera nokkur skerðing á því.
Jeg hefi fylgt þeirri reglu að láta háskólaráðið óskorað ráða sínum málum. En það liggur í augum uppi, að slík breyting sem þessi, að háskólinn fái hálfa kennara fyrir heila, er svo mikilsverð, að hún má ekki ná fram að ganga án þess að leitað sje að minsta kosti álits háskólaráðsins.
Jeg skal að vísu játa það, að jeg get verið hv. flm. (P. O.) sammála um það, að æskilegt sje að fækka embættismönnum landsins að því leyti sem hægt er og reyna að nota starfskrafta hvers einstaklings eftir því sem kostur er. En þó má ekki ganga svo langt í þessu efni að draga úr tiltrú þeirri, sem þjóðin verður að bera til embættismanna sinna; t. d. er það mjög alvarlegt í þessu sambandi að rýra á nokkurn hátt álit það, er þjóðin verður að bera fyrir hæstarjetti, en það er þó óbeinlínis gert með því að ætla honum að eins hálfa starfskrafta.
Að hæstirjettur hafi haft lítið að starfa og fá mál með höndum síðan hann fluttist inn í landið, er ekki nema rjett. En ástæðan til þess held jeg að sje sú, að of fljótt hefir verið breytt frá því fyrirkomulagi, sem áður tíðkaðist við landsyfirrjettinn, að sækja og verja mál skriflega. Þessi munnlegi málflutningur, eins og honum er nú hagað við hæstarjett, er líka miklu kostnaðarsamari, svo varla mundi ástæðulaust að athuga nákvæmlega, hvort ekki væri rjett að hverfa aftur að því, sem áður var, sem sje að taka upp skriflegan málflutning í staðinn fyrir munnlegan.
En þar sem frv. þetta er nú fram komið, tel jeg rjett, að það haldi áfram og komist til nefndar, sem athugi það rækilega, og þá að sjálfsögðu í samráði við háskólaráðið og dómendurna í hæstarjetti. Á þeirra áliti og umsögn virðist mjer afdrif frv. byggjast.
Jeg viðurkenni, að líklegt sje, að eitthvað megi spara í þessu efni, án þess þó að skaða hæstarjett eða rýra álit hans. T. d. þykir mjer sennilegt, að hægt væri að spara hæstarjettarritarann að mestu leyti. Má vera, að fækka megi dómendum, og taka þá um leið upp skriflegan málflutning.