03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í C-deild Alþingistíðinda. (1292)
40. mál, hæstiréttur
Magnús Jónsson:
Eiginlega ætlaði jeg mjer ekki að mæla á móti frv. þessu, þó að jeg hins vegar telji mig ekki fylgjandi því, heldur hafði jeg ætlað mjer að gera smáathugasemdir við það, en hæstv. forsrh. (J. M.) benti einmitt á sumt af því, sem jeg hafði ætlað mjer að taka fram, svo þess vegna get jeg verið stuttorður.
Jeg verð að líta svo á, að frv. þessu sje að nokkru leyti hnuplað frá sparnaðarnefndinni, sem skipuð var á öndverðu þessu þingi, því það hlýtur einmitt að vera í hennar verkahring að koma með till. í sparnaðaráttina, eins og þær, sem hjer er um að ræða, enda sje jeg það á frv., sem verið var að útbýta núna og einmitt kemur frá sparnaðarnefndinni, Er því auðsætt, að sparnaðarmennirnir ætla ekki að láta hugsjón sína vera í skýjunum, þó að orkað geti tvímælis, hvort þessi aðferð þeirra miði til sparnaðar.
Af þessu, sem jeg hefi nú sagt, þykist jeg ekki kveða of hart að, þó að jeg segi, að flest bendi til, að frv. þetta hafi ekki verið gerhugsað. Og vil jeg þá fyrst taka fyrir þá hliðina, sem að háskólanum snýr. — Dettur mjer þá í hug, hvort þessir nýju embættismenn eigi heldur að heita háskólakennarar eða dómendur. Eftir frv. að dæma virðist það nokkurn veginn tekið skýrt fram, að þeim sje ætlað að heita hæstarjettardómarar en ekki prófessorar. Eftir háskólalögunum eru kennarar hans prófessorar, docentar eða aukakennarar, en með frv. þessu verður hvorki að ræða um prófessora eða docenta við lagadeildina. Að vísu gætu þeir þá skoðast sem aukakennarar, en þá kemur það til athugunar, að aukakennarar geta hvorki verið háskólarektorar eða deildarforsetar, samkvæmt háskólalöggjöfinni, og verður þá lagadeildinni meinað að hafa nokkra íhlutun um stjórn háskólans. En hvað sem öllu þessu líður, þá virðist það hverjum auðsætt, að frv. þetta geti ekki náð fram að ganga, nema háskólalögin sjeu jafnframt endurskoðuð og þeim þá breytt, svo frv. verði í samræmi við þau.
Það má vel vera, að fleira sje að athuga við frv. þetta, enda skal jeg fúslega játa það, að mjer hefir ekki unnist tími til þess að gagnrýna það til hlítar.
Þó er ein mótbára enn, frá mínu eigin sjónarmiði, er jeg vildi bæta við.
Það er mín skoðun og hefir einatt verið, að heppilegast sje, þegar veita á embætti við háskólann, að skipa í það unga menn og efnilega. Og þessi skoðun mín byggist á því, að fremur megi treysta ungum mönnum til þess að verða vísindamenn heldur en þeim, sem komnir eru til ára, þó að þeir geti góðir verið, sumir þeirra. Hvort sem heldur er að ræða um lækna, guðfræðinga eða lagamenn, þá gerir maður sjer altaf betri vonir um þá, sem yngri eru og kunnir að áhuga, enda standa þeir betur að vígi til allra vísindaiðkana, og meiri árangurs af starfsemi þeirra að vænta eftir því sem þeir geta fyr hlýtt köllun sinni. En það er einmitt markmið hvers háskóla að eignast sem flesta og besta vísindamenn, hvern á sínu sviði.
Nú er svo háttað, eins og kunnugt er, að embættismenn yfir höfuð geta ekki gefið sig að vísindastörfum, aðrir en háskólakennararnir; þess vegna er illa farið, ef löggjafarvaldið setti skorður við því, að þessir fáu menn, sem hjer er um að ræða, gætu þroskað vísindahæfileika sína. En hvað hæstarjett snertir, þá held jeg, að þar geti ekki komið til mála að skipa nema nokkuð roskna menn að jafnaði, menn, sem auk þess að vera góðir lagamenn hafi þá lífsreynslu og gætni til að bera, sem hver góður dómari verður að hafa. Þetta tvent samrýmist því illa.