03.03.1922
Neðri deild: 13. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í C-deild Alþingistíðinda. (1300)
40. mál, hæstiréttur
Bjarni Jónsson:
Jeg vil ekki hverfa frá því, sem jeg fyr sagði, að sú er tilætlunin, að prófessorar í lögum við háskólann stundi lagavísindi íslensk, forn og ný, og geri það svo vel, að stúdentar utan úr heimi sæki hingað, til fræðslu um íslensk lögvísindi. En til þess, að þetta megi verða, þurfa prófessorarnir að vera meira en yfirheyrsluvjelar og handleiðslumenn. Þeir verða jafnframt að vera vísindamenn.
Um bókaútgáfuna er það að segja, að vel geta þau árabil komið, að eigi sje fært að gefa út vísindabækur, en það varir eigi til langframa, og hygg jeg, að menn verði eigi svo hraðvirkir, að eigi megi bíða á meðan.
En vísindastarfsemin verður þó ætíð aðalatriðið. Hún getur ein aukið sæmd landsins og vakið eftirtekt á því hjá stærri þjóðum.
Það er sagt, að hún gefi eigi tekjur af sjer, en það er þó ekki svo fráleitt sem margur hyggur, að vitið verði látið í askana. Þjóð, sem er þekt fyrir vísindastarfsemi sína, hún á greiðari aðgang á heimsmarkaðinum að selja sinn fisk og sitt smjör. Jeg hefi fyr sagt það hjer, og segi það enn, að danska smjörið á mikið að þakka Albert Thorvaldsen. En komist þetta skipulag á, fellur öll vísindastarfsemin alveg niður, því að enginn er sá verkmaður til, að hann fái annað þessu öllu. Auk þess er verkaskifting hjer sjálfsögð, því það er alt önnur andleg starfsemi að kveða upp dóma eða rannsaka fortíð og nútíð. Sami maðurinn hefir ekki tíma til að gegna þessum óskyldu störfum. Að breyta þessu á þennan veg væri sama sem að gera meðalfje úr ágætisfje, en það hygg jeg að góðum fjármönnum þætti alllítill búhnykkur. Auk þess væri annað eins tiltæki og þetta hreinasta dauðasynd gegn heiðri þjóðarinnar og andlegri velferð.
Hæstv. fjrh. (M. G.) sagði, að þjóð, sem ekki væri 100.000, gæti ekki í öllum efnum hagað sjer eins og miljónaþjóðirnar. Það er hverju orði sannara, en jeg held líka, að það sje allfjarri því, að vjer Íslendingar höfum hagað oss svo.
Annars furðar mig á því, að hæstirjettur skuli vera sumum mönnum þessi þyrnir í auga. Jeg veit ekki betur en að meiri hlutinn af dómurum hans hafi átt sæti í yfirrjettinum gamla, og var þá ekki talið eftir kaup þeirra. Jeg skal játa, að það væri ef til vill vinnandi vegur að fækka þeim um tvo, svo að þeir yrðu að eins þrír, eins og var í yfirrjettinum áður; það gæti að minsta kosti ekki talist nein hneisa. Annars er ekki gott um það að segja, hve mikið starf þetta verður í framliðinni. Þessi dómstóll er svo ungur enn, að tæplega verður í því efni bygt á reynslu þeirra fáu ára, sem hann er búinn að starfa hjer. Auk þess vantar mig, og jeg hygg fleiri hjer, þekkingu í þessu máli til að geta lagt rjettan úrskurð á það, og hygg jeg, að rjettast væri að leita álits dómaranna sjálfra um það.
Einhver nefndi það hjer áðan, að einn af prófessorum lagadeildarinnar hefði verið í verki með að semja frv. þetta. Það má vel vera, að hann hafi hjálpað til að orða það, en hafi hann gert þar meira að, þá vil jeg minna á danska talsháttinn: „Skomager, bliv ved din Læst!“, og væri honum betra að stunda sinn starfa en að sitja við að semja slíkt.
Annars hefir því verið hreyft fyrir skömmu, hvort ekki myndi rjettast að bæta við þriðja dómnum á milli undirrjettar og hæstarjettar. Virðist því þessi hreyfing ganga heldur í öfuga átt við það, sem ætla mætti. Skal jeg fyrir mitt leyti lýsa því yfir, að jeg myndi fúsari að ljá slíku frv. fylgi mitt heldur en því, sem hjer er á ferðinni. Jeg tel það nauðsynlegt, eftir því, sem kostur er á, að tryggja landsmönnum að geta fengið rjettan úrskurð mála sinna. Hafði jeg, satt að segja, vænst þess, að sparnaðarmennirnir svo nefndu hyggju áður strandhögg sín á öllum öðrum sviðum en dómsmálasviðinu. Auk þess hníga þessi sparnaðaráform ekki í rjetta átt. Landssjóður er nefnilega ekki neitt sjerlega illa stæður. því eins og menn vita, þá sparast samkv. fjárlagafrv. stjórnarinnar alt að því ein miljón króna í verðstuðulslækkun, og rennur það í ríkissjóðinn. Í því efni er ekki nein ástæða til ótta. Það er heldur ekki þetta, sem hefir krept mest að þjóðinni á síðustu tímum, heldur örðugleikarnir á að ná í erlendan gjaldeyri. Það er ekki svo mikið undir því komið, hvernig peningarnir velta á milli Pjeturs og Páls, hvort Þorleifur vinnur í þetta sinn það, sem Jóhannes tapar, eða hvort landssjóður sparar fje á kostnað einstakra manna. Þessi sparnaður hefir ekki sömu þýðingu eins og það, ef hægt er að spara eitthvað, sem kaupa verður frá öðrum löndum. Munurinn er sá, að það er þjóðarsparnaður, en þetta er landssjóðsspámaður. Og jeg held, að það sje áreiðanlega talað of mikið um þennan sparnað, en of lítið um hinn.
Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta að sinni. Þessi orð hefi jeg sagt til þess, að eftirtíminn geti ekki, hvernig sem fer, blandað mjer í skömmina.