15.04.1922
Neðri deild: 48. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í C-deild Alþingistíðinda. (1318)
40. mál, hæstiréttur
Pjetur Ottesen:
Mjer sýnist, að það sje ekki um það að villast, að þeir, sem halda því fram, að sameining þeirra starfa, sem frv. ræðir um, sje brot á stjórnarskránni, verði þá líka að viðurkenna, að það sje einnig stjórnarskrárbrot að fela hæstarjettardómendum kenslu við lagadeild háskólans, eins og nú hefir verið gert, þó um stuttan tíma sje. Út af því, að því hefir verið haldið hjer fram sem sjálfsögðum hlut, að með þessari breytingu mundu hæstarjettardómendur, aðrir en dómstjórinn, öðlast kjörgengi, þá vil jeg taka það fram, að jeg lít svo á, að kenslustörf verði ekki talin til umboðsstarfa þeirra, sem stjórnarskráin hefir í huga, sem aðallega er tollheimta og því um líkt, og því fái hæstarjettardómendur alls ekki kjörgengi með frv. þessu. Ekki get jeg fallist á það, og tel það beinlínis fjarstæðu að vera að halda því fram, að breyting þessi mundi verða til þess að minka traustið á dómstólnum. Líkt fyrirkomulag þessu er í Bandaríkjunum, eins og prófessor H. Hermannsson hefir hent á í blaðagrein nýlega, þar sem hann mælir með þessu fyrirkomulagi. Dómarar þar halda fyrirlestra við háskólana og hefir ekkert þótt athugavert við það, heldur þvert á móti talið mjög hagkvæmt og gott fyrirkomulag.