15.04.1922
Neðri deild: 48. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í C-deild Alþingistíðinda. (1324)

40. mál, hæstiréttur

Forseti (B. Sv.):

Hv. frsm minni hl. (Gunn. S.) og hv. þm. Dala. (B. J.) hafa vikið að því alleindregið, að frv. það, er fyrir liggur, brjóti bág við sum ákvæði stjórnarskrárinnar, og eigi því að vísa því frá samkvæmt fyrirmælum 27. gr. þingskapanna. — Jeg fæ eigi sjeð, að frv. feli í sjer breytingar á ákvæðum stjórnarskrárinnar. Mjer virðist þau standa óbreytt og óhögguð eftir sem áður.

Hitt er annað mál, að aðstaða hæstarjettardómendanna verður önnur en áður gagnvart sumum ákvæðum stjórnarskrárinnar. Starfssviði þeirra er breytt með þessu frv., og af því leiðir, að ákvæði, sem nú gilda um þá í stjórnarskránni, koma þá ekki til greina. Er þar einkum að nefna skilyrði fyrir kjörgengi dómenda í 30. gr. stjórnarskrárinnar.

Það kemur ekki þessari spurningu við, hvort það er heppilegt í sjálfu sjer eða ekki að breyta þann veg afstöðu dómenda til þessara ákvæða stjórnarskrárinnar, og víst mun sú ekki hafa verið tilætlunin, þegar þessi ákvæði voru sett. En um þetta hefir eigi verið búið nógu rækilega í stjórnarskránni, svo að það er á þingsins valdi, hvort það vill nú gera aðra skipun en verið hefir eða ekki, og virðist mjer unt að koma breyting í því efni fram á formlegan hátt, án þess að breyting á stjórnarskránni sje því samfara.

Jeg tel því eigi gild rök til þess að vísa frá frv. þessu.